Festi hf.: Sátt við Samkeppniseftirlitið sem felur í sér viðurkenningu brota á sátt og greiðslu á sektFesti hf. og Samkeppniseftirlitið hafa gert með sér meðfylgjandi sátt vegna rannsóknar sem eftirlitið hefur haft með höndum í tengslum við ætluð brot félagsins á skilyrðum í sátt sem gerð var þann 30. júlí 2018 vegna samruna N1 hf. og Festi hf. og nær rannsóknartímabilið aftur til þess tíma. Með sáttinni er viðurkennt að brotið hafi verið gegn tilteknum ákvæðum sáttarinnar frá 30. júlí 2018 og tekur tillit til eftirfarandi þátta á afmörkuðum tímabilum: - Að nýjum aðila hafi upphaflega verið synjað um tilboð í heildsöluviðskipti með skipaeldsneyti og að fyrirspurnum viðkomandi hafi síðar ekki verið svarað.
- Að verðlagning á heildsöluverði bifreiðaeldsneytis til Dælunnar hafi ekki verið í samræmi við kostnaðarforsendur sáttarinnar á hverjum tíma og að gripið hafi verið til annarra aðgerða sem hafi verið til þess fallnar að hafa áhrif á samkeppnisstöðu hennar og verðmæti eigna.
- Að ekki hafi verið tryggt með fullnægjandi hætti að heildsölutengiliður og starf hans uppfyllti skilyrði sáttarinnar á hverjum tíma.
- Að verslun á Suðurlandi hafi ekki verið seld fyrr en eftir að tímamörk sáttar var liðin til að framkvæma söluna.
- Að Festi hafi ekki beitt sér nægjanlega snemma fyrir því að viðræður um endurskoðun samnings við keppinaut yrðu hafnar og þeim lokið innan tímamarka sáttar og að skráning samskipta í samskiptaskrá væri í samræmi við kröfur sáttar.
- Að óháðum kunnáttumanni hafi ekki verið veittar nauðsynlegar upplýsingar og aðstoð við eftirlit með sáttinni.
Þá viðurkennir Festi hf. að hafa brotið gegn ákvæðum samkeppnislaga um upplýsingaskyldu með því að hafa ekki veitt tímanlega nauðsynleg og fullnægjandi gögn í þágu rannsóknar viðkomandi samrunamáls og með því að hafa ekki gert Samkeppniseftirlitinu fullnægjandi grein fyrir sjónarmiðum félagsins við gerð sáttarinnar á árinu 2018 en brotin taka til afmarkaðra tímabila innan rannsóknartímabilsins. Vegna framangreinds hefur samkomulag náðst um að ljúka málinu með því að Festi hf. greiðir stjórnvaldssekt að fjárhæð 750 milljónir króna sem gjaldfærð verður á 4 ársfjórðungi og kemur til lækkunar á EBITDA afkomu félagsins fyrir árið 2024. Uppgjör október mánaðar liggur fyrir og horfur fyrir nóvember og desember hafa verið uppfærðar. Það er mat stjórnenda að afkoman verði betri en áætlanir gerðu ráð fyrir án áhrifa sektar Samkeppniseftirlitsins. Í ljósi þessa er EBITDA afkomuspá félagsins uppfærð fyrir árið 2024 og lækkar um 550 millj. kr. og er nú 12.200 – 12.500 millj. kr. Með undirritun sáttarinnar telst málinu endanlega lokið gagnvart Festi hf. og kemur ekki til frekari rannsóknar eða málsmeðferðar vegna gagnvart félaginu, starfsfólki eða öðrum einstaklingum af hálfu Samkeppniseftirlitsins. Ásta S. Fjeldsted, forstjóri: „Í tengslum við samruna N1 hf. og Festi hf. var gerð sátt við Samkeppniseftirlitið í júlí 2018 sem fól í sér margvísleg skilyrði sem ætluð voru til að afstýra samkeppnishömlum vegna samrunans. Samkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar möguleg brot Festi á sáttinni frá desember 2020 þegar tilkynnt var um upphaf rannsóknar. Undirritun sáttar Festi hf. við Samkeppniseftirlitið í dag felur í sér endanlega niðurstöðu málsins. Festi hf. viðurkennir með henni að hafa brotið ákveðin skilyrði sáttarinnar og tímanlega upplýsingagjöf samkvæmt samkeppnislögum og samþykkir að greiða sekt sem nemur 750 millj. kr. sem nemur um 0,54% af heildarveltu ársins 2023. Það var mat félagsins að rétt væri að ljúka þessu máli með sátt og horfa fram á veginn. Við drögum lærdóm af málinu og horfum til framtíðar“, segir Ásta S. Fjeldsted Þessi tilkynning er birt af Festi hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi sátt Festi við Samkeppniseftirlitið sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Sölva Davíðssyni, regluverði Festi hf., í samræmi við upplýsingaskyldu félagsins samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.
|