English Icelandic
Birt: 2024-04-04 18:05:00 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (FME) hefur veitt bankanum heimild til að framkvæma endurkaup á eigin bréfum á Íslandi og á heimildarskírteinum útgefnum í Svíþjóð. Heimildin nær til allt að 36.500.000 hluta fyrir allt að 5 milljarða króna, sem nemur um 2,5% af útgefnu hlutafé bankans. Markmið endurkaupa er að lækka hlutafé bankans í samræmi við arðgreiðslustefnu. Stjórnendur bankans hafa nú ákveðið að hefja endurkaup sem munu nema helmingi þeirrar heimildar sem Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt bankanum og stjórn bankans hefur samþykkt. Arion banki hf. mun því nú kaupa allt að 18.250.000 hluti fyrir allt að 2,5 milljarða króna, sem nemur um 1,25% af útgefnu hlutafé bankans (endurkaupaáætlunin).

Landsbankinn hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar á Íslandi og í Svíþjóð. Áætlunin tekur gildi á báðum mörkuðum þann 4. apríl 2024 og gildir til 31. desember 2024. Mun Landsbankinn hf. taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð Arion banka hf. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á þessu tímabili.

Heimilt verður að kaupa allt að 365.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,025% af útgefnum hlutum og allt að 17.885.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,224% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,25% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 50.000.000 kr. í Svíþjóð og 2.450.000.000 kr. á Íslandi (samtals 2,5 milljarðar króna). Er endurkaupaáætlunin hefst á bankinn 10.290.077 eigin hluti sem jafngildir um 0,70% af útgefnum hlutum bankans.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður þannig háttað að kaup hvers dags í kauphöll Nasdaq Ísland og Nasdaq Stokkhólmi verða að hámarki 25% af meðaldagsveltu með hlutabréf eða SDR bankans á undangengnum 20 viðskiptadögum áður en kaup gerast.

Í kauphöll Nasdaq Stokkhólmi mega kaup aðeins eiga sér stað innan þess verðbils sem gildir á Nasdaq Stokkhólmi, þar sem verðbilið nær frá hæsta kaupverði (e. best bid) til lægsta söluverðs (e. best offer) sem í gildi er og tekið saman hjá Nasdaq Stokkhólmi, allt í samræmi kafla H í viðbæti D við Reglubók fyrir útgefendur hlutafjár á aðalmörkuðum Nasdaq Nordic sem tók gildi þann 1. janúar 2024.

Í kauphöll Nasdaq á Íslandi skal verð fyrir hvern hlut að hámarki samsvara hæsta verði í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Ísland, hvort sem hærra er, allt í samræmi við ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem lagagildi hefur á Íslandi.

Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.


Arion banki hf. Tilkynning um framkvmd endurkaupaatlunar.pdf