English Icelandic
Birt: 2021-11-16 16:19:14 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Landsbankinn gefur út græn skuldabréf í evrum

Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum að fjárhæð 300 milljónir evra með gjalddaga í maí 2026. Skuldabréfin bera 0,75% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 95 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans með vísan í sjálfbæra fjármálaumgjörð bankans sem vottuð er af Sustainalytics. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 25. nóvember 2021.

Umsjónaraðilar voru ABN AMRO, J.P. Morgan, Natixis og NatWest Markets.