English Icelandic
Birt: 2023-04-25 17:32:00 CEST
Síminn hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Síminn hf. - Tekjuvöxtur í upphafi árs

Helstu niðurstöður úr rekstri á 1F 2023

  • Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2023 námu 6.298 m.kr. samanborið við 6.093 m.kr. á sama tímabili 2022 og jukust um 3,4%. Sé horft fram hjá einskiptisliðum á 1F 2022 jukust tekjur Símans um 5,2%. Stöðugur vöxtur er í kjarnaþjónustu Símans, mest í sjónvarpsþjónustu, eða tæplega 10%.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.315 m.kr. á 1F 2023 og lækkar því um 12 m.kr. eða 0,9%. EBITDA hlutfallið er 20,9% fyrir 1F 2023 en var 21,8% á sama tímabili 2022. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 318 m.kr. á 1F 2023 samanborið við 574 m.kr. á sama tímabili 2022.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 1 m.kr. á 1F 2023 en voru jákvæð sem nam 92 m.kr. á sama tímabili 2022. Fjármagnsgjöld námu 249 m.kr., fjármunatekjur voru 260 m.kr. og gengistap nam 12 m.kr.
  • Hagnaður á 1F 2023 nam 246 m.kr. samanborið við 553 m.kr. hagnað af áframhaldandi starfsemi á sama tímabili 2022.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 8,8 ma.kr. í lok 1F 2023, en voru 8,9 ma.kr. í árslok 2022. Handbært fé í lok 1F 2023 nam 1,8 ma.kr., en var 3,7 ma.kr. í árslok 2022. Staða útlána hjá Símanum Pay var 1,9 ma.kr. í lok 1F 2023, en var 1,7 ma.kr. í árslok 2022.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 55,3% í lok 1F 2023 og eigið fé 18,8 ma.kr.


Orri Hauksson, forstjóri:

„Árið hefst af krafti. Það var ánægjulegt að sjá að Síminn heldur áfram að laða að ánægða viðskiptavini með heildstæðu vöruframboði. Tekjur jukust milli ára í arðbærustu vörum félagsins; neti, síma og sjónvarpi. Fjártækni heldur einnig áfram örum vexti með útgáfu nýs kreditkorts, sem er aðgengilegt fyrir alla landsmenn. Kostnaður Símans eykst einnig milli ára með samningsbundnum launahækkunum, hröðum afskriftum af fjárfestingum og birgjasamningum sem flestir hafa einhvers konar tengingu við gengi eða verðlag. Þannig skilar gengisveiking og verðbólga sér á endanum inn í kostnað Símans og í núverandi ástandi erum við því afar sátt með að ná að halda EBITDA óbreyttu milli ára.

Farsímakerfi félagsins er í stöðugri uppbyggingu um allt land, í samvinnu félagsins við helstu birgja, Neyðarlínuna og fleiri aðila. Ekkert land í heiminum er betur tengt en Ísland samkvæmt skýrslum Sameinuðu þjóðanna og slík uppbygging kemur ekki af sjálfri sér. Innan fárra ára verður hvert heimili landsins tengt ljósleiðara og í 5G sambandi, en í kjölfar nýrra tíðniúthlutana er Síminn öflugasti samstarfsaðili yfirvalda í að byggja upp farsímanet sem mun ná til allra stofnvega og fjölförnustu hálendisvega landsins á næstu árum.

Við höldum áfram að fjárfesta í hágæða sjónvarpsefni, erlendu og innlendu. Sjónvarpsþjónusta okkar hefur vaxið hratt að burðum og nýgerður samningur við HBO hefur valdið sprengingu í notkun Sjónvarps Símans Premium. Meira en 5 milljónir spilana á mánuði þýða að hver áskrifandi notar þjónustuna að meðaltali meira en fjórum sinnum hvern einasta sólarhring. Slíkar tölur þekkjast ekki hjá öðrum efnisveitum í heiminum.

Stafræn umbreyting Símans er á áætlun og einfaldari rekstur í kjölfar sölu á Mílu mun skila sér markvisst til viðskiptavina okkar í liprari þjónustu, aukinni sjálfsafgreiðslu og örari vöruþróun. Framtíðin er björt nú þegar fyrirtækið getur byrjað að keppa á jafnræðisgrundvelli, í stað þess að um það gildi sérstök og aukin reglustýring. Á síðasta degi fyrsta fjórðungs ársins greiddi Síminn ríflega 16 milljarða króna til eigenda sinna og hefur á tveimur árum greitt þeim yfir 55 milljarða króna ásamt því að kaupa eigin bréf að virði 6,6 milljarða króna.“

 

Kynningarfundur 26. apríl 2023

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 26. apríl 2023 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á fjarfestatengsl@siminn.is og verður þeim svarað í lok fundarins.

 

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans (orri@siminn.is)
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans (oskarh@siminn.is)

Viðhengi



Siminn hf. - Arshlutareikningur samstu 1F 2023.pdf
Siminn hf. - Fjarfestakynning 1F 2023.pdf
Siminn hf - Afkomutilkynning 1F 2023.pdf