Hafnarfjarðarkaupstaður hefur lokið útboði í skuldabréfaflokknum HFJ 50 1
Heildartilboð í HFJ 50 1 voru samtals 1.700 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,74-3,79%. Ákveðið var að taka tilboðum samtals að nafnvirði 1.200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,75%.
Þetta var fjórða útboðið í skuldabréfaflokknum og er heildarstærð flokksins 5.200 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Benediktsdóttir
sviðsstjóri fjármálasviðs Hafnarfjarðarkaupstaðar
netfang: helga@hafnarfjordur.is