Icelandic
Birt: 2001-03-07 09:04:19 CET
Skel fjárfestingafélag hf. - Hluthafafundir

Niðurstaða aðalfundar Skeljungs hf.

Aðalfundur Skeljungs hf. var haldinn í gær á Grand Hótel í Reykjavík.  Á
fundinum var félaginu kosin ný stjórn.  Hana skipa þeir: Benedikt Jóhannesson
formaður, Hörður Sigurgestsson, varaformaður, Gunnar Þ.Ólafsson, Hallgrímur
Gunnarsson og Haraldur Sturlaugsson.  Friðrik Pálsson er varamaður í stjórn
Skeljungs hf.

Allar tillögur sem lagðar voru fram á fundinum
voru samþykktar þar á meðal tillaga um að greiða 13% arð til hluthafa og
heimild til að taka upp rafræna skráningu hlutabréfa félagsins.

Þrátt fyrir 0,9% almennan samdrátt á íslenska olíumarkaðinum
árinu 2000 miðað við árið áður jókst heildarsala Skeljungs hf. á olíuvörum á
sama tíma um 4,5% og var tæplega 338 milljónir lítra.  Áætluð markaðshlutdeild
félagsins á eldsneytismarkaði hækkaði úr tæpum 36% árið 1999 í rösklega 37% á
síðasta ári og var félagið með mesta eldsneytissölu íslensku olíufélaganna í
lítrum talið það ár. Hagnaður félagsins af reglulegri starfsemi eftir skatta
nam 326 milljónum króna árið 2000.

Hluthafar í Skeljungi hf. voru
558 í byrjun marsmánaðar og hlutafé í félaginu er 755,4 milljónir króna.