Icelandic
Birt: 2024-08-20 15:48:57 CEST
SÍL 2 hs.
Árshlutaupplýsingar

Árshlutareikningur SÍL 2 hs. 30.6.2024

Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SÍL 2 hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í mars árið 2023.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 51 þús. kr. á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Eignir sjóðsins í lok júní 2024 námu 7.078 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins, efnahagi hans 30. júní 2024 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2024, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar veitir Anna Kristjánsdóttir í síma 444 7461, anna.kristjansdottir@stefnir.is

Viðhengi



SIL 2 hs. arshlutareikningur 30.6.2024.pdf