Icelandic
Birt: 2021-05-28 17:22:10 CEST
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 32 1 og RVKN 24 1

Reykjavíkurborg hefur ákveðið, í samræmi við útgáfuáætlun 2021, að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 24 1 miðvikudaginn 2. júní. Heimild til lántöku á árinu 2021 er 34.400 m.kr. Þetta er fjórða útboð ársins.

Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 2.000 m.kr. að markaðsvirði í útboðinu.

RVK 32 1 ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 21. október 2032. Heildarstærð RVK 32 1 fyrir þetta útboð nemur alls 9.861 m.kr. að nafnvirði.

RVKN 24 1 er óverðtryggður skuldabréfaflokkur sem ber 3,0% nafnvexti sem greiðast tvisvar á ári. Höfuðstóllinn greiðist í einu lagi á lokagjalddaga 11. maí 2024. Útistandandi í RVKN 24 1 fyrir þetta útboð er 1.530 m.kr. að nafnvirði.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 8. júní.

Reykjavíkurborg hefur boðið viðskiptavökum, sem eru Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, að hafa umsjón með útboðinu og taka á móti tilboðum í útboðinu. Tilboðum skal skilað inn á netfangið fjarstyring@reykjavik.is fyrir kl. 16:00 á útboðsdegi.

Nánari upplýsingar veita:

Bjarki Rafn Eiríksson
Fjárstýringar – og innheimtuskrifstofa
Sími: 852-5589

Karl Einarsson
Fjárstýringar – og innheimtuskrifstofa
Sími: 693-9358