Birt: 2025-02-19 13:20:07 CET
SÍL 2 hs. - Fyrirtækja atburðir

Ársreikningur SÍL 2 hs. 2024

Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SÍL 2 hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í mars árið 2023.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á árinu 2024 að fjárhæð 103 þús. kr. á árinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Eignir sjóðsins í árslok 2024 námu 7.065 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2024, efnahag hans 31. desember 2024 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2024, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. https://www.stefnir.is/sjodir/#skradir_fjarmalagerningar 

Nánari upplýsingar veitir Fríða Einarsdóttir í síma 660-0642, frida.einarsddottir@stefnir.is

Viðhengi


SIL 2 arsreikningur 31.12.2024.pdf