English Icelandic
Birt: 2012-12-18 08:00:00 CET
Nasdaq Nordic - Fjárfestatilkynningar

NASDAQ OMX Iceland býður Fjarskipti hf. velkomið á Aðalmarkaðinn

Reykjavík, 18. desember 2012 NASDAQ OMX (NASDAQ: NDAQ) tilkynnir að í dag hefjast viðskipti með hlutabréf Fjarskipta hf. (Auðkenni: VOICE) á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland. Fjarskipti (Vodafone á Íslandi) tilheyra fjarskiptageiranum og flokkast sem lítið félag (e. small cap). Vodafone á Íslandi er áttunda félagið sem skráð er á Aðalmarkað innan NASDAQ OMX Nordic á árinu 2012 og þriðja félagið sem skráð er á NASDAQ OMX Iceland á þessu ári.

Vodafone er fjarskiptafyrirtæki sem býður einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alla meginþætti fjarskiptaþjónustu. Tugir þúsunda íslenskra heimila og yfir hundrað þúsund einstaklingar nýta sér þjónustu Vodafone, sem einnig þjónustar öll stærstu sveitarfélög landsins og mörg af stærstu fyrirtækjunum. Um 390 manns vinna hjá Vodafone. Vodafone byggir þjónustu og vöruúrval að miklu leyti á samstarfi við Vodafone Group Plc.                                   

Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone á Íslandi: „Þetta er stór dagur í okkar sögu og fyrir íslenska hlutabréfamarkaðinn. Með skráningu félagsins hefur bæst við ný atvinnugrein á hlutabréfamarkaðinn og sem eina fjarskiptafélagið þar hlökkum við til að vinna með nýjum eigendum og fjárfestum. Fjarskiptamarkaðurinn er lifandi og skemmtilegur og atvinnugreinin hefur breyst mikið á undanförnum 20 árum. Eftir önnur 20 ár munum við hafa séð eitt og annað sem okkur þykir óhugsandi í dag. Við hlökkum til að taka þátt í þeirri þróun, enda gegna traust og góð fjarskipti sífellt stærra hlutverki í daglegu lífi fólks og resktri fyrirtækja. Skráningarferlið hefur á undanförnum mánuðum verið bæði krefjandi og gagnlegt. Við höfum velt við hverjum steini í rekstrinum og hlökkum til verunnar á hlutabréfamarkaðnum.“

Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland, sagði: Við bjóðum Vodafone á Íslandi hjartanlega velkomið á markaðinn. Skráning félagsins er enn eitt merkið um stöðugan vöxt hlutabréfamarkaðarins og mun fjölga fjárfestingartækifærum á honum og auka fjölbreytni. Við hlökkum til að styðja við Vodafone á Íslandi með auknum sýnileika og seljanleika til hagsbóta fyrir félagið og fjárfesta þess.”

Íslandsbanki er umsjónaraðili með skráningunni sem og viðskiptavaki ásamt Landsbankanum.

- # -

Um NASDAQ OMX

NASDAQ OMX Group, Inc. setti á fót fyrstu rafrænu kauphöllina og hefur ætíð verið frumkvöðull á sviði rafrænna viðskipta. Fyrirtækið eflir efnahagslíf með framsæknum tæknilausnum sem spanna allan viðskiptaferilinn – allt frá áhættustýringu til viðskipta, eftirlits og uppgjörs. Við starfrækjum 24 verðbréfamarkaði, 3 uppgjörshús og 6 verðbréfaskráningar í Bandaríkjunum og Evrópu, sem þjónusta viðskipti með hlutabréf, valrétti, skuldabréf, afleiður, hrávörur, framtíðarsamninga og samsettar vörur. Kerfi NASDAQ OMX geta afgreitt meira en 1 milljón skilaboða á sekúndu á hraða sem er innan við 80 míkrósekúndur á hvert skeyti og státa af 99,999% uppitíma. Þau þjóna meira en 70 kauphöllum í 50 þróuðum löndum og nýmarkaðslöndum og afgreiða 1 af hverjum 10 verðbréfaviðskiptum í heiminum. Verðlaunuð markaðsgögn og vísitölur okkar víðsvegar um heim eru lykilviðmið í fjármálageiranum. Um 3.400 fyrirtæki með heildarmarkaðsvirði í kringum 6,2 billjón Bandaríkjadala eru skráð á NASDAQ OMX. Nýsköpun þessara fyrirtækja mótar samfélagið sem við búum í – þannig veitum við hugmyndum framtíðarinnar aðgang að fjármagni í dag. Nánari upplýsingar er að finna á www.nasdaqomx.com. Fylgist með okkur á Facebook (http://www.facebook.com/NASDAQ) og Twitter (http://www.twitter.com/nasdaqomx). (Auðkenni: NDAQ og í S&P 500 vísitölunni).

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.

 

- # -

2012_1218_Vodafone listing_ICE.pdf