Icelandic
Birt: 2026-03-05 18:44:16 CET
Alma íbúðafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á 6 mánaða víxlinum AL 26 0915. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 720 m.kr.

Alma hefur ákveðið að samþykkja tilboð að fjárhæð 460 m.kr. á 8,40% vöxtum. Á gjalddaga þann 16. mars næstkomandi eru víxlar að nafnvirði 640 milljónir m.kr.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxilsins.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 16. mars 2026.

Nánari upplýsingar veitir:

Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf. - ingolfur@al.is