Icelandic
Birt: 2021-09-28 22:19:53 CEST
Alma íbúðafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Alma íbúðafélag hf.: Útboð á skuldabréfum 7. október 2021

Alma íbúðafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 7. október næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í tveimur nýjum skuldabréfaflokkum: AL120625 og AL101227.

Skuldabréfaflokkarnir AL120625 og AL101227 eru gefnir út undir útgáfuramma félagsins og eru veðtryggðir samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.

AL120625 er óverðtryggður flokkur með lokagjalddaga 12. júní 2025. Vextir greiðast einu sinni á ári og höfuðstóll á lokagjalddaga

AL101227 er verðtryggður flokkur með lokagjalddaga 10. desember 2027 en fylgir 25 ára endurgreiðsluferli með jöfnum greiðslum til lokagjalddaga en þá greiðast eftirstöðvar höfuðstóls upp.

Vextir flokkanna ákvarðast í fyrirhuguðu útboði

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem verður tekið í hverjum flokki. Alma íbúðafélag áskilur sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudaginn 14. október 2021 og stefnt er að skráningu á Nasdaq Iceland innan þriggja mánaða.

Í kynningu með útboðinu kemur m.a. fram að áætluð EBITDA af leigustarfsemi félagsins verði kr. 1.902 milljónir árið 2021 og kr. 2.731 milljónir árið 2022.

Landsbankinn mun hafa umsjón með útboðinu og fjárfestar skulu skila tilboðum fyrir klukkan 16:00 fimmtudaginn 7. október 2021 á netfangið verdbrefamidlun@landsbankinn.is

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. a- og c-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl sem tengjast skuldabréfunum og útgáfu á þeim verða aðgengileg á vefsíðu félagsins, www.al.is/company/investors/bond-issuance. Tilkynningar sem Alma íbúðafélagið hf. hefur birt í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Nánari upplýsingar veita:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is

Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 og í gegnum netfang Markaðsviðskipta Landsbankans vegna útboðsins: verdbrefamidlun@landsbankinn.is