Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 24. janúar 2018. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 26. janúar 2018.
Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.829.000.000 á bilinu 2,40% - 2,85%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 400.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,43%. Útistandandi fyrir voru ISK 30.847.152.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 31.247.152.565.
Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 2.880.000.000 á bilinu 2,46% - 2,89%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 800.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,48%. Útistandandi fyrir voru ISK 9.611.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 10.411.000.000.
Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þór Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is