English Icelandic
Birt: 2026-05-06 10:00:00 CEST
Kaldalón hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kaldalón hf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 5. maí 2026

Kaldalón hf. hefur lokið útboði á nýjum skuldabréfaflokk KALD 120531 sem gefinn er út undir 40.000 m.kr. útgáfuramma félagsins. Alls bárust átján tilboð að nafnvirði 3.560 m.kr. á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,99%-4,20%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 3.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,09%. 

Kaldalón hf. hefur lokið útboði á nýjum skuldabréfaflokk KALD 120531 sem gefinn er út undir 40.000 m.kr. útgáfuramma félagsins.

Alls bárust átján tilboð að nafnvirði 3.560 m.kr. á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,99%-4,20%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 3.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,09%. 

Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður, til 5 ára, með 25 ára endurgreiðsluferli, með jöfnum greiðslum á 6 mánaða fresti og föstum 4,00% ársvöxtum. Skuldabréfaflokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudaginn 12. maí 2026. Sótt verður um töku skuldabréfaflokksins til viðskipta á Nasdaq Iceland. Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta dag viðskipta með eins dags fyrirvara.

Fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna, sem og töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: kaldalon.is/fjarfestar

Nánari upplýsingar veita:

Sigurbjörg Ólafsdóttir  Fjármálastjóri Kaldalóns hf.  Sími: +354 856 7155

Netfang: sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is

Gunnar S. Tryggvason  Verðbréfamiðlun Landsbankans  Sími: +354 821 2090

Netfang: gunnars@landsbankinn.is