Icelandic
Birt: 2021-11-11 10:37:09 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVKNG 40 1 og RVKN 35 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 3.570 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVKNG 40 1 voru samtals 1.830 m.kr. að nafnvirði á bilinu 4,60% - 5,00%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 950 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,70%. Útistandandi fyrir útboð voru 8.180 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 9.130 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 1.740 m.kr. að nafnvirði á bilinu 4,58% - 4,74%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.240 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,65%. Útistandandi fyrir útboð voru 17.865 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 19.105 m.kr. að nafnverði.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 16. nóvember 2021.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272