Reykjastræti ehf. lauk í dag, 11. maí 2026, stækkun á skuldabréfaflokknum REYS 280133. Gefin voru út skuldabréf að nafnvirði 2.400 m.kr. og seld á ávöxtunarkröfunni 4,25%. Stærð flokksins eftir stækkun verður 3.900 milljónir að nafnvirði.
Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna mánudaginn 18. maí nk. og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið. Skuldabréfin voru seld í lokuðu söluferli og útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar ESB nr. 2017/1129.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og fyrirhugaðri töku þeirra til viðskipta á markaði.
Nánari upplýsingar:
Ólafur Stefánsson, netfang: olafurs@reykjastraeti.is
Ólafur Þór Jóhannesson, netfang: olafur@tgverk.is
Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4008, netfang: arnar.saemundsson@fossar.is