Icelandic
Birt: 2024-01-18 18:34:43 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 18. janúar 2024

Skuldabréfaútboði Reita í skuldabréfaflokknum REITIR150532 er lokið.

Um er að ræða verðtryggðan skuldabréfaflokk sem er veðtryggður með almenna tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2032 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum fram til lokagjalddaga, þegar allar eftirstöðvar greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta og afborgana höfuðstóls fara fram á tveggja mánaða fresti.

Alls bárust tilboð að nafnverði 6.060 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnverði 3.160 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,0%. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 7.000 m.kr. í flokknum.

Gert er ráð fyrir að uppgjör viðskipta fari fram fimmtudaginn 25. janúar næstkomandi og að bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 669 4416 og Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is.