English Icelandic
Birt: 2022-10-14 23:49:38 CEST
Íslandsbanki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Íslandsbanki semur um viðskiptavakt með sértryggð skuldabréf

Íslandsbanki hf. hefur undirritað samninga við Arion banka hf., Kviku hf. og Landsbankann um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf útgefin af Íslandsbanka og skráð á Nasdaq Iceland.

Tilgangur samninganna er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningarnir taka til í því skyni að eðlilegt markaðsverð skapist á skuldabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.

Viðskiptavakar munu daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. Viðskiptavaka ber þó ekki að setja fram kaup- og sölutilboð í nýjan flokk skuldabréfa fyrr en flokkurinn hefur náð 3 ma kr. að stærð og skal lágmarksfjárhæð tilboða þá vera 20 m. kr. þar til flokkurinn hefur náð 5 ma kr. að stærð en þá skal lágmarksfjárhæð tilboða hækka í 60 m. kr. þar til flokkurinn hefur náð 10 ma kr. en þá skal lágmarksfjárhæð tilboða verða 80 m. kr. Skuldabréfaflokkarnir ISB CBI 24, ISB CBI 26 og ISB CBI 30 eru undanskildir framangreindum skilyrðum og skal lágmarksfjárhæð tilboða í ISB CBI 24 og ISB CBI 26  vera 60 m.kr. og ISB CBI 30 vera 40 milljón kr. að nafnvirði.

Skyldur einstakra viðskiptavaka falla niður á tilteknum viðskiptadegi ef viðskiptavaki hefur átt viðskipti (tilgreind "AUTO") með sértryggð skuldabréf fyrir 500 m. kr. að nafnverði samanlagt í þeim flokkum sem samningurinn nær til.

Hámarksmunur kaup- og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreinda töflu:

Árafjöldi til lokagjalddaga Hámarksverðbil
0 - 6 mánuðir Ekki skilgreint
6 mánuðir - 2 ár 0,20%
2 - 4 ár 0,30%
4 -6 ár 0,35%
6 - 9 ár 0,60%
9 -12 ár 0,70%
12 - 18 ár 1,00%
18 ár eða lengra 1,15%

Flokkar gefnir út á fljótandi vaxtagrunni, með REIBOR eða aðra sambærilega vexti sem birtir eru opinberlega sem vaxtagrunnur, skulu hafa 0,2% hámarksverðbil á kaup- og sölutilboðum.

Verðtryggðir flokkar sem eru ótækir til frekari útgáfu vegna reglna Seðlabanka Íslands nr. 492/2001 um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár, með síðari breytingum, eru undanþegnir ofangreindum kvöðum um hámarksmun kaup- og sölutilboða.

Frá gildistöku samninga um viðskiptavakt geta viðskiptavakar fengið tímabundin bréfalán í flokki þeirra skuldabréfa sem samningurinn tekur til.  Hámarkslán til viðskiptavaka í hverjum flokki sértryggðra skuldabréfa er 320 m.kr. að nafnvirði að undanskildum ISB CBI 24 þar sem hámarkslán er 80 m.kr. að nafnvirði.

Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl – ir@islandsbanki.is