Icelandic
Birt: 2023-05-24 19:50:03 CEST
Síminn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Síminn hf. - Niðurstaða víxlaútboðs 24. maí 2023

Síminn hf. lauk í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki SIMINN231206.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.980 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 9,65-9,94%. Tilboðum að fjárhæð 900 m.kr. að nafnvirði var tekið á 9,80% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 30. maí 2023. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Matei Manolescu, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, netfang: matei.manolescu@fossar.is
Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is
Óskar Hauksson, fjármálastjóri, oskarh@siminn.is.
Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar, helgith@siminn.is.