Icelandic
Birt: 2022-03-07 10:37:43 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 32 1 og RVKG 48 1

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 32 1 og RVKG 48 1

Reykjavíkurborg  tilkynnti 3. mars sl. um frestun skuldabréfaútboðs sem fara átti fram 9. mars til 16. mars, til samræmis við dagskrá funda borgarráðs. Í ljósi frekari breytinga á dagskrá borgarráðs og nýrrar staðfestrar dagskrár hefur verið tekin ákvörðun um að fara í skuldabréfaútboð þann 9. mars í samræmi við upphaflega útgáfuáætlun sem samþykkt var í borgarráði þann 20. janúar 2022.

Í boði verða skuldabréfaflokkarnir RVK 32 1 og RVKG 48 1. Heimild til lántöku á árinu 2022 er 25.000 m.kr.

Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 2.500 m.kr. að markaðsvirði í útboðinu.

RVK 32 1 ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 21. október 2032. Heildarstærð RVK 32 1 fyrir þetta útboð nemur alls 14.163 m.kr. að nafnvirði.

RVKG 48 1 ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 21. október 2048. Heildarstærð RVKG 48 1 fyrir þetta útboð nemur alls 8.720 m.kr. að nafnvirði.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 15. mars.

Reykjavíkurborg hefur boðið viðskiptavökum, sem eru Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, að hafa umsjón með útboðinu og taka á móti tilboðum í útboðinu. Tilboðum skal skilað inn á netfangið fjarstyring@reykjavik.is fyrir kl. 16:00 á útboðsdegi.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272