English Icelandic
Birt: 2023-03-01 22:30:00 CET
Alvotech S.A.
Ársreikningur

Alvotech birtir uppgjör fyrir árið 2022 og kynnir nýjustu áfanga í rekstri félagsins

  • Heildartekjur ársins 2022 hækkuðu um 114% í 85,0 milljónir dollara samanborið við 39,7 milljónir dollara á árinu 2021, vegna tekna af sölu AVT02, líftæknihliðstæðu við Humira®, sem komin er á markað í 17 löndum, auk leyfis- og áfangagreiðslna.
  • Klínískar rannsóknir hófust á þremur fyrirhuguðum líftæknilyfjahliðstæðum til viðbótar, AVT03 (Prolia®/Xgeva®), AVT06 (Eylea®) og AVT05 (Simponi®/Simponi Aria®)
  • Sótt var um markaðsleyfi fyrir AVT04, fyrirhugaða líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara® á helstu markaðssvæðum, þar á meðal í Bandaríkjunum og Evrópu
  • Bandaríska Matvæla- og lyfjaeftirlitið (FDA) staðfesti að afstaða til umsóknar um markaðsleyfi fyrir AVT02 myndi liggja fyrir 13. apríl nk. og jafnframt að eftirlitið gerði ráð fyrir að hefja úttekt á verksmiðju Alvotech í Reykjavík 6. mars nk.
  • Stjórnendur Alvotech munu kynna uppgjörið á fundi sem streymt verður á vefnum, fimmtudaginn 2. mars nk. kl. 13 að íslenskum tíma   

Alvotech (NASDAQ: ALVO) birti í dag uppgjör fyrir árið 2022 og kynnti nýjustu áfanga í rekstri félagsins.

„Rekstur Alvotech gekk vel á árinu 2022. Félagið var skráð á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi og bættust á annað þúsund hluthafa í hóp eigenda félagsins sem ég vil bjóða velkomna. Það var jafnframt ánægjulegt að sjá mikinn vöxt í tekjum félagsins á milli ára sem nam 114%, en sala á AVT02, líftæknilyfjahliðstæðu við Humira, er nú hafin í 17 löndum. Alvotech hélt áfram að fjárfesta í framleiðsluaðstöðu sinni á Íslandi ásamt því að fjárfesta enn frekar í lyfjaþróun félagsins,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech. „Við hlökkum til framhaldsins á árinu 2023 sem verður án efa spennandi. Úttekt Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) á framleiðsluaðstöðu Alvotech á Íslandi hefst mánudaginn 6. mars og mun standa yfir til 17. mars. Starfsfólk Alvotech hefur undirbúið félagið vel fyrir þessa úttekt og reiknum við með að geta hafið markaðssetningu 1. júlí nk. í Bandaríkjunum á líftæknilyfjahliðstæðu okkar við Humira, sem er þó háð samþykki FDA.“

Nýjustu áfangar

Í desember sl. tilkynnti Alvotech að FDA hefði staðfest að afstaða yrði tekin 13. apríl nk. til upprunalegrar umsóknar fyrirtækisins um markaðsleyfi fyrir AVT02 sem líftæknilyfjahliðstæðu við Humira í háum styrk. Samhliða var tilkynnt að FDA geri ekki frekari athugasemdir við umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT02 sem útskiptilega hliðstæðu við Humira í háum styrk. Samþykki krefst jákvæðrar niðurstöðu úr úttekt FDA á framleiðsluaðstöðu Alvotech í Reykjavík. Í janúar gekkst Alvotech undir úttekt Evrópsku lyfjastofnunarinnar (EMA) á góðum framleiðsluháttum  og endurnýjaði stofnunin í kjölfarið GMP framleiðsluleyfi fyrirtækisins fyrir Evrópumarkað.

Í janúar sl. tilkynnti Alvotech að FDA og EMA hefðu samþykkt að taka til umfjöllunar umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT04, fyrirhugaða líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara® (ustekinumab). Klínískar rannsóknir hófust á þremur líftæknilyfjahliðstæðum til viðbótar, AVT03 (fyrirhugaðri hliðstæðu við Prolia/Xgeva), AVT06 (fyrirhugaðri hliðstæðu við Eylea) og AVT05 (fyrirhugaðri hliðstæðu við Simponi/Simponi Aria).

Í febrúar 2023 kynnti Alvotech niðurstöðu lokaðs hlutafjárútboðs að fjárhæð 137,0 milljónir dollara, með þátttöku innlendra aðila. Í desember 2022 kynnti Alvotech niðurstöðu lokaðs útboðs á breytilegum víkjandi skuldabréfum að fjárhæð 70,0 milljónir dollara. Í sama mánuði samþykkti Nasdaq Iceland umsókn Alvotech um töku hlutabréfa fyrirtækisins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland og hófust viðskipti með bréfin á Aðalmarkaðnum 8. desember 2022, en áður höfðu viðskipti með bréfin farið fram á Nasdaq Iceland First North markaðnum, frá 23. júní 2022. Þá hafa viðskipti verið með bréfin á bandaríska Nasdaq markaðnum síðan 16. júní 2022.

Helstu niðurstöður fjárhagsuppgjörs fyrir árið 2022

Ítarlegri umfjöllun um afkomu félagsins má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar.

  • Þann 31. desember 2022 átti félagið 66,4 milljónir dollara í lausu fé. Þá voru heildarskuldir félagsins 764,6 milljónir dollara, að meðtöldum 19,9 milljóna dollara skammtímaskuldum.
  • Heildartekjur voru 85,0 milljónir dollara á árinu 2022, samanborið við 39,7 milljónir dollara á árinu 2021.
  • Kostnaðarverð seldra vara var 64,1 milljón dollara á árinu 2022. Áður en vörusala hófst var framleiðslukostnaður flokkaður með rannsóknar- og þróunarkostnaði.
  • Rannsóknar og þróunarkostnaður var 180,6 milljónir dollara á árinu 2022, samanborið við 191,0 milljón dollara á árinu 2021.
  • Stjórnunarkostnaður var 186,7 milljónir dollara á árinu 2022, samanborið við 84,1 milljónir dollara á árinu 2021.
  • Fjármunatekjur voru 2,5 milljónir dollara á árinu 2022, samanborið við 51,6 milljónir dollara á árinu 2021.
  • Fjármagnsgjöld námu 188,4 milljónum dollara á árinu 2022, samanborið við 117,4 milljónir dollara á árinu 2021.
  • Gengishagnaður nam 10,6 milljónum dollara á árinu 2022, samanborið við 2,7 milljónir dollara á árinu 2021.
  • Gjaldfært tap vegna afskráningar (e. extinguishment) skulda  á árinu 2022 nam 27,3 milljónum dollara, samanborið við tekjufærslu upp á 151,8 milljónir dollara á árinu 2021.
  • Reiknaður tekjuskattur á árinu 2022 var jákvæður um 37,8 milljónir dollara, samanborið við 47,7 milljónir dollara á árinu 2021.
  • Tap á árinu 2022 nam 513,6 milljónum dollara, eða 2,6 dollurum á hlut, samanborið við 101,5 milljónir dollara eða 0,92 dollarar á hlut á árinu 2021.

Streymi af uppgjörs- og kynningarfundi

Alvotech efnir til uppgjörs- og kynningarfundar sem sendur verður út í beinu vefstreymi fimmtudaginn 2. mars nk. kl. 13 að íslenskum tíma. Upplýsingar um hvernig hægt er að tengjast vefstreyminu er að finna á fjárfestasíðu Alvotech, https://investors.alvotech.com undir liðnum News and Events – Events and Presentation. Þar verður einnig hægt að nálgast upptöku af fundinum að honum loknum.

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson
alvotech.ir[at]alvotech.com


Consolidated Statements of Profit or Loss and Other Comprehensive Income or Loss for the years ended 31 December 2022, 2021 and 2020  
        
        
   2022 2021 2020
     
     
USD in thousands    
        
Product revenue ..................................................................................................... 24,836 - -
License and other revenue ..................................................................................... 58,193 36,772 66,616
Other income .......................................................................................................... 1,988 2,912 2,833
Cost of product revenue ........................................................................................ (64,095) - -
Research and development expenses .................................................................... (180,622) (191,006) (148,072)
General and administrative expenses ................................................................... (186,742) (84,134) (58,914)
        
Operating loss (346,442) (235,456) (137,537)
        
Share of net loss of joint venture .......................................................................... (2,590) (2,418) (1,505)
Finance income ....................................................................................................... 2,549 51,568 5,608
Finance costs ........................................................................................................... (188,419) (117,361) (161,551)
Exchange rate difference ....................................................................................... 10,566 2,681 3,215
(Loss) / gain on extinguishment of financial liabilities ....................................... (27,311) 151,788 -
       
Non-operating (loss) / profit  (205,205) 86,258 (154,233)
        
Loss before taxes (551,647) (149,198) (291,770)
Income tax benefit ................................................................................................. 38,067 47,694 121,726
        
Loss for the year (513,580) (101,504) (170,044)
        
Other comprehensive income / (loss)      
Item that will be reclassified to profit or loss in subsequent periods:      
Exchange rate differences on translation of foreign operations ........................ (6,111) (305) 5,954
Total comprehensive loss (519,691) (101,809) (164,090)
        
        
Loss per share      
Basic and diluted loss for the period per share .................................................... (2.60) (0.92) (1.82)


Consolidated Statements of Financial Position as of
31 December 2022 and 2021
  
        
        
USD in thousands   31 December
2022
 31 December
2021
      
Non-current assets      
Property, plant and equipment .......................................................................................  220,594 78,530
Right-of-use assets ...........................................................................................................  47,501 126,801
Goodwill ...........................................................................................................................  11,643 12,367
Other intangible assets ....................................................................................................  25,652 21,509
Contract assets .................................................................................................................  3,286 1,479
Investments in joint venture ...........................................................................................  48,568 55,307
Other long-term assets ....................................................................................................  5,780 1,663
Restricted cash .................................................................................................................  25,187 10,087
Deferred tax assets ..........................................................................................................  209,496 170,418
        
Total non-current assets   597,707 478,161
        
Current assets      
Inventories .......................................................................................................................  71,470 39,058
Trade receivables .............................................................................................................  32,972 29,396
Contract assets .................................................................................................................  25,370 17,959
Other current assets ........................................................................................................  32,949 14,736
Receivables from related parties .....................................................................................  1,548 1,111
Cash and cash equivalents ..............................................................................................  66,427 17,556
        
Total current assets   230,736 119,816
        
Total assets   828,443 597,977


Consolidated Statements of Financial Position as of
31 December 2022 and 2021
  
        
                                                                                                 
USD in thousands   31 December
2022
 31 December
2021
      
Equity      
Share capital .....................................................................................................................  2,126 135
Share premium .................................................................................................................  1,058,432 1,000,118
Other reserves ..................................................................................................................  30,582 -
Translation reserve ..........................................................................................................  (1,442) 4,669
Accumulated deficit .........................................................................................................  (1,654,114) (1,140,534)
        
Total equity   (564,416) (135,612)
        
Non-current liabilities      
Borrowings .......................................................................................................................  744,654 398,140
Derivative financial liabilities ..........................................................................................  380,232 -
Other long-term liability to related party .......................................................................  7,440 7,440
Lease liabilities .................................................................................................................  35,369 114,845
Long-term incentive plan ................................................................................................  544 56,334
Contract liabilities ............................................................................................................  57,017 44,844
Deferred tax liability ........................................................................................................  309 150
        
Total non-current liabilities   1,225,565 621,753
        
Current liabilities       
Trade and other payables ................................................................................................  49,188 28,587
Lease liabilities .................................................................................................................  5,163 7,295
Current maturities of borrowings ..................................................................................  19,916 2,771
Liabilities to related parties .............................................................................................  1,131 638
Contract liabilities ............................................................................................................  36,915 29,692
Taxes payable ...................................................................................................................  934 841
Other current liabilities ...................................................................................................  54,047 42,012
        
Total current liabilities   167,294 111,836
Total liabilities   1,392,859 733,589
        
Total equity and liabilities   828,443 597,977


Consolidated Statements of Cash Flows for the years ended
31 December 2022, 2021 and 2020
  
        
        
   2022 2021 2020
USD in thousands      
        
Cash flows from operating activities       
Loss for the year ..................................................................................................... (513,580) (101,504) (170,044)
Adjustments for non-cash items:       
Gain on extinguishment of SARs liability ............................................................ (4,803) - -
Share listing expense .............................................................................................. 83,411 - -
Long-term incentive plan expense ........................................................................ 5,492 17,955 18,053
Depreciation and amortization ............................................................................. 20,409 18,196 16,419
Impairment of property, plant and equipment .................................................... - 2,092 2,142
Impairment of other intangible assets .................................................................. 2,755 3,993 -
Share of net loss of joint venture .......................................................................... 2,590 2,418 1,505
Finance income ....................................................................................................... (2,549) (51,568) (5,608)
Finance costs ........................................................................................................... 188,419 117,361 161,551
Loss/(Gain) on extinguishment of financial liabilities ........................................ 27,311 (151,788) -
Share based payments ............................................................................................ 10,317 - -
Exchange rate difference ....................................................................................... (10,566) (2,681) (3,215)
Income tax benefit / (expense) ............................................................................. (38,067) (47,694) (121,726)
Operating cash flow before movement in working capital (228,861) (193,220) (100,923)
Increase in inventories ........................................................................................... (32,412) (29,412) (3,255)
(Increase) / decrease in trade receivables ............................................................ (3,576) (28,813) 21,771
Increase / (decrease) in liabilities with related parties ......................................... 56 (453) 1,674
(Increase) / (increase) in contract assets ............................................................... (9,218) 15,286 (11,667)
Increase in other assets .......................................................................................... (17,194) (4,363) (7,383)
Increase in trade and other payables ..................................................................... 16,442 14,318 227
Increase in contract liabilities ................................................................................ 19,396 21,470 24,019
(Decrease) / increase in other liabilities ................................................................ (21,384) 5,160 7,134
        
Cash used in operations (276,751) (200,027) (68,403)
Interest received ..................................................................................................... 568 16 212
Interest paid ............................................................................................................ (35,372) (28,004) (5,664)
Income tax paid ...................................................................................................... (834) (155) (440)
        
Net cash used in operating activities  (312,389) (228,170) (74,295)


        
Cash flows from investing activities       
Acquisition of property, plant and equipment ..................................................... (37,880) (20,462) (7,485)
Disposal of property, plant and equipment ......................................................... 379 - 79
Acquisition of intangible assets ............................................................................. (11,122) (20,171) (4,497)
Restricted cash in connection with the amended bond agreement .................... (14,914) - (5,000)
       
Net cash used in investing activities (63,537) (40,633) (16,903)
        
Cash flows from financing activities       
Repayments of borrowings .................................................................................... (34,714) (37,496) (2,896)
Repayments of principal portion of lease liabilities ............................................. (11,147) (7,350) (6,087)
Proceeds from new borrowings ............................................................................ 193,678 113,821 30,000
Proceeds on issue of equity shares ........................................................................ - 185,856 34,385
Extinguishment financing fees .............................................................................. (12,102) - -
Gross proceeds from the PIPE Financing ........................................................... 174,930 - -
Gross PIPE Financing fees paid ........................................................................... (5,562) - -
Proceeds from the Capital Reorganization .......................................................... 9,827 - -
Proceeds from loans from related parties ............................................................ 160,000 - -
Repayment of loans from related parties ............................................................. (50,000) - -
        
Net cash generated from financing activities  424,910 254,831 55,402
Increase / (decrease) in cash and cash equivalents ............................................. 48,984 (13,972) (35,796)
Cash and cash equivalents at the beginning of the year ...................................... 17,556 31,689 67,403
Effect of movements in exchange rates on cash held ......................................... (113) (161) 82
       
Cash and cash equivalents at the end of the year ..................................... 66,427 17,556 31,689