English Icelandic
Birt: 2022-11-07 11:24:18 CET
Íslandsbanki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Íslandsbanki tilkynnir um endurkaupatilboð á skuldabréfaútgáfum í evrum

Íslandsbanki hf. tilkynnir í dag um endurkaupatilboð annars vegar til eigenda (i) 300 milljóna evra skuldabréfaútgáfu sem ber 0,50% vexti og er á gjalddaga 20. nóvember 2023 (ISIN: XS2259867039); og hins vegar til eigenda (ii) 300 milljóna evra skuldabréfaútgáfu með innköllunarheimild og er á gjalddaga 19. janúar 2024 (ISIN: XS1755108344) gegn greiðslu (hér eftir hvort um sig endurkaupatilboð og saman endurkaupatilboðin).

Endurkaupatilboðin eru háð þeim skilmálum og skilyrðum sem er að finna í hjálagðri tilkynningu (e. Launch Announcement) og er nánar lýst er í endurkaupatilboðslýsingu (e. Tender Offer Memorandum) með endurkaupatilboðunum sem dagsett er 7. nóvember 2022. Endurkaupatilboðslýsinguna má nálgast (háð tilteknum takmörkunum á dreifingu) hjá umsýsluaðila endurkaupanna (e. Tender Agent): Kroll Issuer Services Limited (sími: +44 20 7704 0880; netfang: islandsbanki@is.kroll.com; vefsíða: https://deals.is.kroll.com/islandsbanki).

Umsjónaraðilar (e. Dealer Managers) með endurkaupunum fyrir hönd bankans eru Barclays, Citigroup, Goldman Sachs Bank Europe og J.P. Morgan.

Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - ir@islandsbanki.is 
 

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Fyrirvari

Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.

Viðhengi



Islandsbanki 2022 - Tender Launch Announcement.pdf