English Icelandic
Birt: 2024-09-06 10:10:00 CEST
Icelandair Group hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Icelandair: Farþegum fjölgaði um 10% í ágúst

Icelandair flutti 601 þúsund farþega í ágúst, 10% fleiri en í ágúst 2023. Þar af voru 33% á leið til Íslands, 13% frá Íslandi, 50% ferðuðust um Ísland og 4% innan Íslands. Sætanýting var 86,9% og jókst hún um þrjú prósentustig á milli ára. Stundvísi var 82,8%, samanborið við 78,9% í ágúst í fyrra. Það sem af er ári hefur Icelandair flutt 3,2 milljónir farþega, 8% fleiri en í fyrra.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Farþegum í ágúst fjölgaði um 10% frá sama mánuði í fyrra og er hann einn umsvifamesti mánuður okkar frá upphafi hvað farþegafjölda varðar. Við höldum áfram að finna fyrir minni eftirspurn á markaðnum til Íslands samanborið við síðasta ár en eins og sjá má á aukinni sætanýtingu höfum við bætt upp fyrir hana með því að leggja aukna áherslu á tengifarþega. Þess má geta að hluti þessara farþega eru ferðamenn til Íslands þar sem 18 þúsund tengifarþegar nýttu sér Stopover vöruna okkar í ágúst, fimm þúsund fleiri en í fyrra. Þessir farþegar höfðu því viðdvöl á Íslandi í einn til sjö daga á leið sinni yfir Atlantshafið og sköpuðu þannig mikilvæg viðskiptatækifæri fyrir íslenska ferðaþjónustu.

Það er ánægjulegt að sjá áframhaldandi góða stundvísi og þann frábæra árangur sem við höfum náð með sameiginlegu átaki alls starfsfólks. Við leggjum áherslu á að halda áfram að efla þjónustuna við viðskiptavini okkar og við hlökkum til að bæta Lissabon við okkar öfluga leiðakerfi í október. Þessi nýi áfangastaður fellur vel að áformum okkar um samstarf við portúgalska flugfélagið TAP, sem mun opna spennandi tengingar í gegnum Lissabon.“


08 Traffic Data.pdf
Icelandair Faregum fjolgai um 10 i agust.pdf