Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem flokkurinn LBANK CB 27 var boðinn til sölu.
Níu tilboð að fjárhæð 2.860 m. kr. að nafnverði bárust á ávöxtunarkröfunni 8,19%-8,23%. Tilboðum að fjárhæð 2.160 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 8,21%. Heildarstærð flokksins verður 24.660 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Uppgjörsdagur er 24. maí 2023.
Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.