Icelandic
Birt: 2022-01-27 10:27:15 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 4.840 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 4.160 m.kr. að nafnvirði á bilinu 0,96% - 1,12%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 860 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,00%. Útistandandi fyrir útboð voru 13.303 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 14.163 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 680 m.kr. að nafnviði á bilinu 4,80% - 4,92%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 400 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,88%. Útistandandi fyrir útboð voru 19.105 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 19.505 m.kr. að nafnverði.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 1. febrúar 2022.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272