Icelandic
Birt: 2026-05-28 18:31:43 CEST
Ísfélag hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Uppgjör Ísfélags hf. á fyrsta ársfjórðungi 2026 

Helsta úr starfseminni. 

  • Félagið var rekið með hagnaði á fyrsta ársfjórðungi og má það að mestu rekja til góðrar loðnuvertíðar og góðra aflabragða Sólbergs ÓF. 
  • Hátt verð var á helstu afurðum félagsins. 
  • Vörubirgðir voru talsverðar í lok tímabilsins en salan hefur gengið vel.  
  • Uppsjávarafli skipa félagsins var um 33.600 tonn og bolfisk- og rækjuafli um 4.200 tonn á tímabilinu. 
  • Framleiddar bolfisk- og rækjuafurðir voru um 2.300 tonn, frosnar uppsjávarafurðir voru um 13.300 tonn og mjöl og lýsi um 5.600 tonn. 



Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjöri tímabilsins. 

  • Rekstrartekjur tímabilsins námu 73,3 m.USD. 
  • Hagnaður á rekstri tímabilsins nam 22,8 m.USD. 
  • EBITDA-framlegð var 31,7 m.USD eða 43,2% á tímabilinu.  
  • Heildareignir námu 880,8 m.USD þann 31.03.2026 og eiginfjárhlutfall var 66,7%. 
  • Nettó vaxtaberandi skuldir voru 125,7 m.USD í lok fyrsta ársfjórðungs.  
  • Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var um 16,1%. 
  • Arðsemi eigin fjár síðustu 12 mánuði var um 8,7%. 

Rekstur. 

Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2026 námu 73,3 m.USD, samanborið við 37,3 m.USD á sama tímabili 2025.  

Hagnaður af rekstri var 22,8 m.USD á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við 3,6 m.USD tap á sama tímabili 2025.  

EBITDA-framlegð á fyrsta ársfjórðungi 2026 var 31,7 m.USD eða 43,2% af rekstrartekjum, samanborið við 7,3 m.USD eða 19,7% af rekstrartekjum á sama tímabili 2025. 


Efnahagur. 

Heildareignir félagsins voru 880,8 m.USD þann 31.03.2026, þar af voru fastafjármunir 705,7 m.USD og veltufjármunir 175,1 m.USD.  

Í árslok 2025 voru heildareignir 865,8 m.USD, þar af voru fastafjármunir 712,7 m.USD og veltufjármunir 153,2 m.USD. Heildareignir hækkuðu um 15,0 m.USD á fyrsta ársfjórðungi 2026. Rekja má breytinguna að mestu til hækkunar á birgðum, sem og á handbæru fé og hækkunar á viðskipta- og skammtímakröfum. Hækkun á birgðum má að mestu rekja til loðnuafurða sem framleiddar voru á tímabilinu.  

Eigið fé Ísfélagsins var 587,9 m.USD þann 31.3.2026, en var 567,0 m.USD í lok árs 2025. Eiginfjárhlutfallið var 66,7% þann 31.03.2026 en í lok árs 2025 var eiginfjárhlutfallið 65,5%.  

Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins voru 125,7 m.USD þann 31.03.2026 en voru í árslok 2025 153,4 m.USD.  

Sjóðstreymi. 

Á fyrsta ársfjórðungi 2026 var handbært fé frá rekstri 22,5 m.USD, samanborið við 2,3 m.USD á sama tímabili 2025. Fjárfestingarhreyfingar á fyrsta ársfjórðungi voru jákvæðar um 1,7 m.USD. Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 18,0 m.USD. Hækkun á handbæru fé á fyrsta ársfjórðungi 2026 var 5,9 m.USD, að teknu tilliti til gengismunar og var handbært fé í lok tímabilsins 42,2 m.USD. 

Meginniðurstöður í íslenskum krónum á fyrsta ársfjórðungi 2026. 

Þegar helstu niðurstöður úr rekstrarreikningi tímabilsins eru færðar yfir í íslenskar krónur á meðalgengi fyrsta ársfjórðungs 2026 (123,94) voru rekstrartekjur félagsins 9.080 milljónir króna, rekstrarhagnaður 3.336 milljónir króna, hagnaður eftir skatta 2.832 milljónir króna og EBITDA-framlegð var 3.925 milljónir króna.  

Sé efnahagur félagsins í lok fyrsta ársfjórðungs 2026, færður í íslenskar krónur á lokagengi tímabilsins (124,89), eru heildareignir 110,0 milljarðar króna, fastafjármunir 88,1 milljarður króna og veltufjármunir 21,9 milljarðar króna. Eigið fé í lok fyrsta ársfjórðungs 2026 var 73,4 milljarðar króna og skuldir og skuldbindingar 36,6 milljarðar króna.  

Hluthafar. 

Lokaverð hlutabréfa í lok fyrsta ársfjórðungs 2026 var 137,5 kr. á hlut og var markaðsvirði félagsins þá 112,4 milljarðar króna. Fjöldi hluthafa var 2.523. 

Samþykkt árshlutareiknings. 

Árshlutareikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Ísfélagsins þann 28.05.2026. Árshlutareikningur er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla um árshlutareikninga, IAS 34.  Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins. 

Frá Stefáni Friðrikssyni forstjóra. 

„Ísfélagið skilaði góðri afkomu á fyrsta ársfjórðungi 2026. Ástæðurnar voru góð loðnuvertíð og  ágæt aflabrögð Sólbergs ÓF, frystitogara félagsins, ásamt háu verði á helstu afurðum félagsins. Vörubirgðir voru talsverðar í lok tímabilsins en salan hefur gengið vel. Mjöl- og lýsisverð hefur farið hækkandi undanfarnar vikur en þar sem félagið er ekki með stóran kolmunnakvóta mun hækkunin ekki hafa mikil áhrif á reksturinn. 


Félagið hefur fjárfest mikið í rekstrarfjármunum á undanförnum árum sem mun bæta reksturinn í framtíðinni auk þess sem félagið er fjárhagslega sterkt til að takast á við frekari fjárfestingar og tækifæri á komandi árum. 

Á þessu ári lýkur rafvæðingu fiskimjölsverksmiðju félagsins í Eyjum og vonandi verður fyrir hendi næg raforka á sanngjörnu verði, til þess að fjárfestingin skili a.m.k. ávinningi hvað varðar minni losun á koltvísýringi. 

Breytingum í útgerð skipa félagsins er að mestu lokið en uppsjávarskipið Suðurey og togarinn Ottó M. Þorláksson eru til sölu. Togbáturinn Jón á Hofi var seldur og afhentur nýjum eigendum í janúar á þessu ári. 

Í haust varð stórbruni í verksmiðju Primex ehf., sem er dótturfélag Ísfélags hf. Bruninn hefur haft veruleg áhrif á starfsemi Primex ehf. en á næstu vikum mun framleiðsla hefjast þar að nýju í endurbættri verksmiðju. Primex ehf. er vel tryggt, bæði eignir og rekstur, því mun bruninn hafa lítil áhrif á fjárhag Ísfélags hf. 


Ísfélagið á óbeinan hlut í laxeldisfyrirtækinu Kaldvik á Austfjörðum í gegnum Austur Holding AS. Fjárfesting Ísfélagsins í Austur er liður í stefnu félagsins að breikka tekjustofna þess og styðja við frekari uppbyggingu Kaldvik. Ísfélagið lánaði Austur Holding AS 10 m€ í apríl sem aftur lánaði féð til Kaldvik AS vegna tímabundins lausafjárskorts. Eignarhlutur Austur í Kaldvik AS er 56,75%. Ísfélagið á 29,3% hlut í Austur Holding AS. 

Loðnuvertíðin gekk vel en það er ekki tilviljun þegar kemur að rekstri Ísfélagsins. Fjárfestingar undanfarna ára, bæði í skipum og landvinnslum félagsins gera það að verkum að hægt er að hámarka verðmætin á stuttum vertíðum. Það er afar ánægjulegt hversu vel til tókst að skapa þessi verðmæti sem verða til vegna góðra og samhentra áhafna, góðs sölustarfs og síðast en ekki síst öflugs starfsfólks í landi. Fyrsta loðnulöndunin var þann 7. febrúar og síðasta löndun þann 19. mars og stóð vertíðin því yfir í 41 dag. Eftir leiðréttingar í samræmi við kjarasamninga til hækkunar á aflaverðmæti skipanna var t.d. hásetahluturinn án orlofs á Sigurði VE og Heimaey VE á loðnuvertíðinni á bilinu 8,7-8,9 milljónir króna en skipin voru hvort um sig á sjó í u.þ.b. 350 klukkustundir eða sem nemur tæplega 15 dögum á sjó.  

Á dögunum kom út skýrsla Hagfræðistofnunar um fjárfestingar og eignir sjávarútvegsfélaga og dótturfélaga þeirra í öðrum félögum á undanförnum árum. Hagnaður er ein af þremur stoðum sjálfbærs rekstrar, hinar stoðirnar eru umhverfislegar og  félagslegar. Hagnaðurinn verður annað hvort eftir í félaginu og er þá oftast nýttur til margvíslegra fjárfestinga sem eiga að styrkja reksturinn eða hann fer til hluthafa sem arðgreiðsla, oftast hvoru tveggja.  Arður sem greiddur er til hluthafa er talinn eðlilegt endurgjald til þeirra sem lagt hafa félaginu til fjármagn í formi hlutafjár alveg eins og þeir sem lána félaginu fjármagn fá vaxtatekjur af því. Orðræða sumra þeirra sem standa á hinu pólitíska sviði, bæði aðal- og aukaleikara, um hagnað og arðgreiðslur sjávarútvegsfyrirtækja og fullyrðingar um leyndarhyggju í þessum efnum eru einfaldlega rangar. Ísfélagið hefur gert grein fyrir umsvifum sínum í atvinnulífinu í ársreikningum og á heimasíðu sinni um árabil auk þess að vera skráð fyrirtæki á markaði (Nasdaq) og fylgja þeim reglum sem um slík félög  gilda. Það er umhugsunarefni ef þeir sem bera ábyrgð á landsstjórninni telja það ekki fagnaðarefni ef hluthafar nota arðinn sinn til uppbyggingar atvinnulífsins öllum landsmönnum til hagsbóta. 

Hækkanir á veiðigjaldi og kolefnisgjaldi leggjast nú á félagið af miklum þunga, þrátt fyrir að á yfirstandandi ári séu í gildi tímabundnir afslættir af veiðigjöldunum. Aðferðafræðin við útreikning gjaldanna byggir á mjög hæpnum forsendum um rekstur fyrirtækjanna og röngum fullyrðingum um umframhagnað þeirra. Eins og ég hef margoft sagt leiðir þessi skattheimta til þess á endanum að samkeppnishæfni sjávarútvegsins versnar til muna, ávöxtun eigin fjár verður lakari en í öðrum atvinnugreinum og hvatinn og getan til að fjárfesta verður ekki lengur fyrir hendi.    

Mikil breyting verður á makrílveiðum skipa félagsins í sumar þar sem íslensk stjórnvöld sömdu við flest strandríkin sem stunda veiðar úr stofninum um óþarflega mikla skerðingu á hlutdeild Íslands í veiðunum. Á sama tíma hefur heildarmakrílkvótinn verið skorinn umtalsvert niður. Þessi niðurstaða þýðir að engar uppsjávarveiðar verða aftur stundaður á vegum félagsins fyrr en seinnipartinn í ágúst. Frystihúsum félagsins á Þórshöfn og í Vestmannaeyjum verður því lokað í nokkrar vikur í sumar vegna verkefnaskorts en það hefur ekki gerst síðan félagið hóf vinnslu á makríl fyrir rúmum tveimur áratugum. Þetta hefur bæði áhrif á fyrirtækið og starfsmenn sem verða af verulegum tekjum. 


Samningar strandríkjanna um deilistofnana eru mikilvægir og nauðsynlegir til þess að tryggt sé að veiðar úr þessum stofnum séu stundaðar með sjálfbærum hætti. Í þeim samningaviðræðum, sem óhjákvæmilega eru framundan, er afar mikilvægt að samningamenn þjóðarinnar standi sig betur og komi til viðræðnanna með meira sjálfstraust og fái meiri stuðning frá ríkisstjórninni en raunin var við gerð makrílsamningsins. Sama á við um aðra fiskveiðisamninga eins og annars vegar við Færeyinga og hins vegar Norðmenn og Rússa í Barentshafi.  

Framundan er mikil óvissa um hvort forsenduákvæði núverandi kjarasamninga muni virkjast og samningunum verði sagt upp. Verðbólgudraugurinn, sem er ein helsta martröð launafólks, hefur farið á kreik og það ætti að vera skýrt forgangsverkefni stjórnvalda að kveða niður þessa leiðu afturgöngu sem fyrst og efla þar með trú atvinnurekenda og launþega, á stöðugleika í efnahagslífinu.“ 

Fjárhagsdagatal. 

Birting uppgjörs Q2 2026 – 28. ágúst 2026 

Birting uppgjörs Q3 2026 – 27. nóvember 2026 


Nánari upplýsingar. 
Stefán Friðriksson, forstjóri, spurningar sendist á fjarfestatengsl@isfelag.is 


Viðhengi


Isfelag - kynning arsreiknings1F 2026.pdf
Isfelag arshlutareikningur 03 2026.pdf