Hagar hf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 9. október 2024Hagar hf. luku í dag útboði í skuldabréfaflokknum HAGA120926 1 ásamt nýjum skuldabréfaflokki HAGA 161127. HAGA 120926 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber fljótandi vexti tengda 1 mánaða REIBOR að viðbættu 1,30% álagi með lokagjalddaga þann 12. september 2026. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 2.000 m.kr. í flokknum. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.280 m.kr. að nafnvirði með álagi á 1 mánaða REIBOR á bilinu 1,09% - 1,30%. Tilboðum að fjárhæð 1.000 m.kr. var tekið á 1,30% álagi á 1 mánaða REIBOR. HAGA 161127 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber fasta 8,60% vexti með lokagjalddaga þann 16. nóvember 2027. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 2.220 m.kr. að nafnvirði þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 8,20% - 8,89%. Tilboðum að fjárhæð 1.560 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 8,60%. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 18. október 2024. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar veita: Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000, asgrimur.gunnarsson@fossar.is Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingabanki hf., arnar.saemundsson@fossar.is Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., geg@hagar.is
|