Icelandic
Birt: 2023-09-21 11:01:28 CEST
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 4.300 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 2.100 m.kr. að nafnvirði á bilinu 4,59%-4,75%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 1.840 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,68%. Útistandandi fyrir útboð voru 30.893 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 32.733 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 2.200 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 9,64%-9,80%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 2.040 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 9,78%. Útistandandi fyrir útboð voru 21.520 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 23.560 m.kr. að nafnverði.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:


Bjarki Rafn Eiríksson
Fjárstýringar- og innheimtuskrifstofa
Netfang: Bjarki.Rafn.Eiriksson@reykjavik.is