Icelandic
Birt: 2021-09-09 11:20:01 CEST
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 8.690 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 4.670 m.kr. að nafnvirði á bilinu 0,85% - 1,02%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.420 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 0,90%. Útistandandi fyrir útboð voru 11.883 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 13.303 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 4.020 m.kr. að nafnviði á bilinu 4,11% - 4,29%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.980 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,16%. Útistandandi fyrir útboð voru 15.885 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 17.865 m.kr. að nafnverði.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 14. september 2021.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272