Icelandic
Birt: 2023-02-21 17:42:31 CET
Útgerðarfélag Reykjavíkur hf
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlum

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hélt lokað útboð á víxlum í tveimur flokkum til 3 og 6 mánaða. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 3.920 milljónir króna. ÚR hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 3.520 milljónum í þriggja mánaða víxilinn með 8,35% vöxtum, sem samsvarar 1,16% álagi á 3M Reibor.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR: „Við hjá ÚR erum afar þakklát fyrir þann mikla áhuga og traust sem fjárfestar hafa sýnt félaginu.“

Greiðslu- og uppgjörsdagur er á föstudaginn 2. mars 2023.

Nánari upplýsingar veitir:
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4200 eða rvg@urseafood.is