Icelandic
Birt: 2022-09-14 18:48:37 CEST
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 14. september 2022. Uppgjör viðskipta fer fram 19. september 2022.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 740.000.000 á bilinu 2,10% - 2,35%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 680.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,28%. Útistandandi fyrir voru ISK 2.710.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 3.390.000.000.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 260.000.000 á bilinu 1,97% - 2,02%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 200.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,97%. Útistandandi fyrir voru ISK 26.660.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 26.860.000.000.

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949