English Icelandic
Birt: 2024-08-14 20:00:00 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki lauk í dag útboði á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ARION CB 27 og ARION CBI 30 fyrir samtals 8.780 m.kr.

Í flokkinn ARION CB 27 bárust 23 tilboð að fjárhæð 6.820 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 8,49 – 8,71%. Tilboð að nafnvirði 2.400 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 8,63%. Heildarstærð flokksins verður 53.100 m.kr. eftir útgáfuna.

Í flokkinn ARION CBI 30 bárust 11 tilboð að fjárhæð 6.380 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,59 – 3,64%. Tilboð að nafnvirði 6.380 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,64%. Heildarstærð flokksins verður 30.240 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 21. ágúst 2024.

Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.


Arion banki Niurstaa utbos sertryggra skuldabrefa.pdf