Icelandic
Birt: 2023-10-19 11:19:24 CEST
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVKG 48 1 og RVKNG 40 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 4.510 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVKG 48 1 voru samtals 3.010 m.kr. að nafnvirði á bilinu 4,27%-4,35%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 2.155 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,30%. Útistandandi fyrir útboð voru 13.190 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 800 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 15.345 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKNG 40 1 voru samtals 1.500 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 9,32%. Ákveðið var að hafna öllum tilboðum. Heildarstærð flokksins er því óbreytt 9.130 m.kr. að nafnverði.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:


Bjarki Rafn Eiríksson
Fjárstýringar- og innheimtuskrifstofa
Netfang: Bjarki.Rafn.Eiriksson@reykjavik.is