English Icelandic
Birt: 2021-05-20 18:49:35 CEST
Kvika banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf. gefur út skuldabréf til sex ára í flokkinum KVB 21 02

Kvika hefur lokið sölu á skuldabréfum að fjárhæð kr. 2.180.000.000 í nýjum almennum skuldabréfaflokki bankans KVB 21 02. Skuldabréfin eru verðtryggð, til sex ára og bera fasta 1% vexti sem greiddir eru árlega.

Skuldabréfin verða skráð á aðalmarkað Nasdaq Iceland í næstu viku.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar í síma 540-3200.