Heimar hagnast um 4,3 milljarða á fyrstu sex mánuðum ársins - EBITDA hækkar um 9,5%
Helstu atriði sex mánaða uppgjörs
Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima
„Rekstur gengur vel og er í takt við áætlanir. Við finnum fyrir sterkri eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði. Tekjuvöxtur leigutekna er 8,2% á fyrstu sex mánuðum ársins sem jafngildir um 1,3% rauntekjuvexti. Heimar hafa fjárfest í uppfærslum á eignasafni og nýjum eignum á undanförnum árum, þessar fjárfestingar eru grundvöllur 8,2% vaxtar leigutekna á fyrstu sex mánuðum ársins. Heildarfermetrum eignasafnsins hefur fækkað um tæp 2% frá árslokum 2022.
Útleiguhlutfall er 97% sem er sambærilegt og verið hefur. Um 45% af tekjum félagsins koma frá opinberum aðilum annars vegar og skráðum fyrirtækjum hins vegar. Vanskil leigutaka eru lág og mörg útleiguverkefni í burðarliðnum.
Á öðrum ársfjórðungi voru undirritaðir leigusamningar um ríflega 17.400 m2 sem er rúmlega tvöföldun frá sama tímabili 2023. Áfram er mjög góð eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði á kjarnasvæðum félagsins. Á síðustu mánuðum hafa bæst við ný atvinnurými á kjarnasvæði Heima í Silfur- og Sunnusmára og Sunnuhlíð á Akureyri.
Vel gekk að ná markmiðum félagsins varðandi útleigu og leiguverð.“
Rekstur og afkoma
Rekstrartekjur námu 7.224 m.kr. fyrstu sex mánuði ársins og þar af námu leigutekjur 6.831 m.kr. Leigutekjur hafa hækkað um 8,2% samanborið við sama tímabil 2023, sem jafngildir tæplega 1,3% raunaukningu. Nokkrar breytingar hafa orðið á eignasafninu á milli ára sem hafa áhrif á leigutekjur. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir (EBITDA) var 4.871 m.kr. sem samsvarar 9,5% hækkun samanborið við sama tímabil 2023. Kostnaður að fjárhæð 100 m.kr. vegna valfrjáls yfirtökutilboðs í Eik fasteignafélag hf. var gjaldfærður að fullu á öðrum ársfjórðungi.
Við birtingu ársuppgjörs 2023 birti félagið rekstraráætlun fyrir árið 2024. Í þeirri áætlun var gert ráð fyrir að hækkun verðlags á árinu yrði 6%. Afkomuspá ársins er óbreytt. Leigutekjur eru áætlaðar 13,7-13,9 ma.kr. og EBITDA er áætluð 9,8-10,0 ma.kr.
Eignasafn og efnahagur
Virði fjárfestingareigna félagsins að frádregnum leigueignum er metið á 187.606 m.kr. Safnið samanstendur nú af 99 fasteignum sem alls eru um 374 þúsund fermetrar. Útleiguhlutfall er um 97% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi. Heildarmatsbreyting fyrstu sex mánuði ársins nam 6.229 m.kr.
Umsvif og horfur
Á fyrstu sex mánuðum ársins hafa verið gerðir leigusamningar fyrir um 25.000 m2 sem er aukning um 8.000 m2 m.v. sama tímabil á síðasta ári.
Sjálfbærni
Heimar fylgjast vel með orkunotkun í eignasafni sínu og vinna að ýmsum verkefnum til að draga úr orkunotkun. Góður árangur hefur náðst með samhentum aðgerðum til lækkunar á orkunotkun t.d. í Smáralind og Egilshöll ásamt lækkun í notkun á vatni í sömu eignum. Samdráttur í orkunotkun hefur bein áhrif á kolefnisspor félagsins þar sem orka myndar stærsta hluta kolefnissporsins.
Fjármögnun
Fjárhagsstaða félagsins er sterk og fjárhagsleg skilyrði innan marka lánaskilmála, eiginfjárhlutfall 31% (skilyrði 25%). Í lok tímabilsins var handbært fé 2.269 m.kr. og auk þess hafði félagið aðgang að ónýttum lánalínum að fjárhæð 4.600 m.kr. í lok tímabilsins.
Endurfjármögnunarþörf félagsins er takmörkuð næstu ár, en engin lán og skuldabréf eru með gjalddaga á árinu 2024. Heildarendurfjármögnunarþörf ársins 2025 eru rúmir 1,2 ma.kr.
Kynningarfundur á árshlutauppgjöri
Samhliða birtingu uppgjörs bjóða Heimar til opins kynningarfundar samdægurs kl. 16:15. Fundurinn verður haldinn í nýjum höfuðstöðvum félagsins í Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Heima mun kynna uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@heimar.is. Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:
https://www.heimar.is/kynningarfundir/uppgjor-2f-2024/
Hægt er að nálgast árshlutareikning vegna fyrstu sex mánaða ársins og kynningargögn á https://www.heimar.is/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/
Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima hf., sími: 821 0001
Viðhengi