English Icelandic
Birt: 2023-10-04 19:30:00 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfaflokki ARION CBI 30 fyrir samtals 4.240 m.kr.

Í heild bárust 10 tilboð að fjárhæð 7.040 m.kr að nafnvirði í flokkinn ARION CBI 30 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,69 - 3,76%. Tilboð að nafnvirði 4.240 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,72%. Heildarstærð flokksins verður 11.260 m.kr. eftir útgáfuna.

Í samræmi við útboðstilkynningu bauðst eigendum flokksins ARION CB 24 að selja bréf sín á fyrirframákveðna hreina verðinu 98,4217 gegn kaupum í útboðinu. Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 2.020 m.kr. að nafnverði í flokknum ARION CB 24.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 11. október 2023.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.


Arion banki hf. Niurstaa utbos sertryggra skuldabrefa.pdf