Icelandic
Birt: 2025-03-05 16:27:43 CET
Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf – BÚS I - Lýsing/tilkynning um birtingu lýsingar

Birting lýsingar fagfjárfestasjóðsins Landsbréf - BÚS I

Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf - BÚS I, kt. 651116-9960, Reykjastræti 2, 101 Reykjavík, Íslandi, hefur birt lýsingu sem samanstendur af verðbréfalýsingu dagsettri 5. mars 2025 og útgefandalýsingu dagsettri 5. mars 2025 (saman nefnt lýsingin). Lýsingin, sem staðfest hefur verið af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, er birt í tengslum við umsókn um töku stækkunar skuldabréfaflokksins BUS 63 til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf.

Lýsingin er á íslensku og er birt á rafrænu formi á vef Landsbréfa hf., rekstrarfélags Landsbréfa BÚS - I, www.landsbref.is/skrad-skuldabref.

Sótt verður um stækkun skuldabréfa í flokknum BUS 63 að nafnverði 2.000.000.000 íslenskra króna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Heildarstærð skuldabréfaflokksins eftir stækkun er 8.920.000.000 íslenskra króna.

Frekari upplýsingar má fá á skrifstofu Landsbréfa í Reykjastræti 2, 101 Reykjavík.

Viðhengi


2025-03-05 Fagfjarfestasjourinn- Landsbref BUS I utgefandalysing-ur.pdf
2025 03 05 Fagfjarfestasjourinn-Landsbref BUS I verbrefalysing-ur.pdf