English Icelandic
Birt: 2024-05-22 16:20:45 CEST
First North Iceland
First North Growth Market - Equities

Nasdaq Iceland samþykkir töku hlutabréfa Ice Fish Farm AS til viðskipta á Nasdaq First North Growth Market Iceland að uppfylltum skilyrðum

Nasdaq Iceland hf. („Kauphöllin“) hefur samþykkt umsókn Ice Fish Farm AS um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Nasdaq First North Growth Market Iceland. Samþykkið er háð því að félagið uppfylli skilyrði reglna Nasdaq First North (Nasdaq First North Growth Market Rulebook for Issuers of Shares) um birtingu skráningarskjals. Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hlutabréf Ice Fish Farm AS á Nasdaq First North Growth Market Iceland verði 29. maí 2024.

Upplýsingar um tilboðabók og önnur tæknileg atriði verða birtar með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.