English Icelandic
Birt: 2023-12-12 16:52:23 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Þrettán tilboð að fjárhæð 2.820 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 8,67%-8,74%. Tilboðum að fjárhæð 1.860 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 8,71%. Heildarstærð flokksins verður 36.280 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Ellefu tilboð að fjárhæð 1.600 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 29 á ávöxtunarkröfu á bilinu 8,19%-8,28%. Tilboðum að fjárhæð 1.460 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 8,25%. Heildarstærð flokksins verður 9.720 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Uppgjörsdagur er 19. desember 2023.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.