Icelandic
Birt: 2026-04-15 18:58:46 CEST
Alma íbúðafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Alma íbúðafélag hf.: Stækkun á víxlinum AL 26 0915

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið við stækkun á víxlinum AL 26 0915. Seldir voru víxlar að fjárhæð 500 m.kr. með 8,725% vöxtum. Áður hafði félagið selt 460 m.kr. í sömu útgáfu. Heildarstærð útgáfunnar nemur því 960 m.kr.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 20. apríl 2026.

Nánari upplýsingar veitir:

Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf. - ingolfur@al.is.