Icelandic
Birt: 2021-11-15 17:24:52 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

REITIR: Rekstrarhagnaður 5.666 m.kr. á fyrstu 9 mánuðum ársins 2021

Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2021. Helstu lykiltölur reikningsins eru:

Lykiltölur rekstar9M 20219M 2020
Tekjur8.6828.134
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna-2.529-2.428
Stjórnunarkostnaður-487-467
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu5.6665.239
Matsbreyting fjárfestingareigna5.114-787
Rekstrarhagnaður10.7804.452
Hrein fjármagnsgjöld-4.826-4.593
Heildarhagnaður/heildartap4.615-335
Hagnaður/tap á hlut5,9 kr. -0,5 kr. 
NOI hlutfall58,5%56,8%
Stjórnunarkostnaðarhlutfall5,0%5,1%
   
Lykiltölur efnahags30.9.202131.12.2020
Fjárfestingareignir159.292152.606
Handbært og bundið fé4.6882.088
Heildareignir166.095156.491
Eigið fé56.66552.828
Vaxtaberandi skuldir89.35984.878
Eiginfjárhlutfall34,1%33,8%
Skuldsetningarhlutfall58,1%57,6%
   
Lykiltölur um fasteignasafn9M 20219M 2020
Nýtingarhlutfall (tekjuvegið)95,1%94,7%

Fjárhæðir eru í milljónum króna nema annað sé tekið fram. Hlutföll í rekstrarreikningi eru reiknuð sem hlutfall heildartekna.

Guðjón Auðunsson, forstjóri:

„Uppgjör Reita fyrir fyrstu níu mánuði ársins liggur fyrir. Eins og tilkynning félagsins til kauphallar frá 27. október sl. bar með sér, þá er reksturinn umfram áætlanir þess og fyrirliggjandi spár greiningaraðila yfir tímabilið.

Megin skýringin á betri afkomu á fjórðungnum en áætlað var er sterkur ferðamannastraumur á síðari hluta sumarsins sem skilaði meiri tekjum en félagið hafði gert ráð fyrir. Að öðru leiti er afkoma Reita í takti við áætlanir, reksturinn er stöðugur og efnahagur félagsins mjög sterkur. Áhrifa covid faraldursins gætir sífellt minna í rekstri félagsins. Verslun innanlands er mjög sterk, nýting eignasafnsins góð og fjárflæði gott.

Um miðjan október sl. tilkynntu Reitir um samkomulag við Íslenskar fasteignir ehf. um sölu á byggingarheimildum og tengdum eignum á svokölluðum Orkureit fyrir 3.830 m.kr. Áætlaður söluhagnaður þessara viðskipta er um 1.300 m.kr. Það er einkar ánægjulegt að þessum áfanga sé náð. Athyglin mun nú beinast að öðrum þróunarreitum félagsins til verðmætasköpunar fyrir hluthafa, en Orkureiturinn var einungis hluti þeirra fasteignaþróunarverkefna sem félagið heldur á.“

Horfur ársins 2021

Félagið gerir ráð fyrir að tekjur ársins 2021 muni nema 11.825 - 11.875 m.kr. og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nemi 7.725 - 7.775 m.kr.

Fjárhagsdagatal

Ársuppgjör 2021     14. febrúar 2022

Aðalfundur 2022     11. mars 2022

Nánari upplýsingar og kynningarfundur

Reitir bjóða markaðsaðilum og fjárfestum á rafrænan kynningarfund þar sem Guðjón Auðunsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 þriðjudaginn 16. ágúst n.k.

Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn, eftir skráningu fá þátttakendur staðfestingarpóst með nánari upplýsingum. Hægt verður að bera upp spurningar á fundinum með skriflegum hætti.

Skráning á kynningarfundinn: https://us02web.zoom.us/webinar/register/WN_xdVOFQYbS0yvzg_LyNjj7g

Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita, reitir.is/fjarfestar.

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660 3320, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.

Um Reiti

Reitir fasteignafélag hf. er íslenskt hlutafélag. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf., ásamt dótturfélögum, sem öll eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Starfsemi félagsins felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem er að stærstum hluta verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignir í eigu félagsins eru um 140 talsins, um 450 þúsund fermetrar að stærð.

Meðal fasteigna félagsins má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, skrifstofubyggingar við Höfðabakka 9 og Vínlandsleið ásamt húsnæði höfuðstöðva Icelandair Group, Sjóvár, Origo og Advania og skrifstofu Landspítalans við Skaftahlíð 24. Hótelbyggingar í eigu Reita eru m.a. Hótel Borg og Hotel Hilton Reykjavík Nordica ásamt Icelandair Hotel Reykjavík Natura. Stærstu leigutakar Reita eru Hagar, Flugleiðahótel, ríki og sveitarfélög. Þá heldur félagið á nokkrum verðmætum byggingarreitum.

Viðhengi



Reitir fasteignafelag 30.9.2021 - arshlutareikningur.pdf
Reitir fasteignafelag 30.9.2021 - kynning.pdf