Icelandic
Birt: 2023-01-11 10:07:54 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Útboð RVKN 35 1 og RVK 53 1

Í dag, miðvikudaginn 11. janúar, efnir Reykjavíkurborg til útboðs á skuldabréfaflokkunum RVKN 35 1 og RVK 53 1.

RVKN 35 1 ber fasta 6,72% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 26. mars 2035. Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 20.040 m.kr. að nafnvirði.

RVK 53 1 ber fasta 4,4% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 10. desember 2053. Heildarstærð RVK 53 1 fyrir þetta útboð nemur alls 22.470 m.kr. að nafnvirði.

Skilmála skuldabréfaflokkana má sjá á vefsvæði Reykjavíkurborgar:

https://reykjavik.is/fjarfestar

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 17. janúar.

Reykjavíkurborg hefur boðið viðskiptavökum, sem eru Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, að hafa umsjón með útboðinu og taka á móti tilboðum í útboðinu. Tilboðum skal skilað inn á netfangið fjarstyring@reykjavik.is fyrir kl. 16:00 í dag.

Nánari upplýsingar veita:

Bjarki Rafn Eiríksson, sími 852-5589
Karl Einarsson, sími 693-9358

Netfang: fjarstyring@reykavik.is