Icelandic
Birt: 2023-10-17 20:59:25 CEST
Síminn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Síminn hf. - Niðurstaða víxlaútboðs 17. október 2023

Síminn hf. lauk í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki SIMINN240423.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 2.160 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 10,10-10,50%.

Tilboðum að fjárhæð 1.400 m.kr. að nafnvirði var tekið á 10,31% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 24. október 2023. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:
Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is
Óskar Hauksson, fjármálastjóri, oskarh@siminn.is.