Icelandic
Birt: 2024-01-19 17:00:00 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 53 1 og RVKN 35 1

Reykjavíkurborg hefur ákveðið, í samræmi við útgáfuáætlun 2024, að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum RVK 53 1 og RVKN 35 1 miðvikudaginn 24. janúar nk. Heimild til lántöku á árinu 2024 er 16.500 m.kr. og þetta er fyrsta útboð ársins.

RVK 53 1 ber fasta 4,4% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 10. desember 2053. Heildarstærð RVK 53 1 fyrir þetta útboð nemur alls 24.285 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 1.000 m.kr.

RVKN 35 1 ber fasta 6,72% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 26. mars 2035. Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 23.560 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 30. janúar nk.

Reykjavíkurborg hefur boðið viðskiptavökum, sem eru Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, að hafa umsjón með útboðinu og taka á móti tilboðum í útboðinu. Tilboðum skal skilað inn á netfangið fjarstyring@reykjavik.is fyrir kl. 16:00 á útboðsdegi.

Nánari upplýsingar veitir:


Bjarki Rafn Eiríksson
Skrifstofa fjárstýringar og innheimtu
Netfang: Bjarki.Rafn.Eiriksson@reykjavik.is