Leiðrétting: Álag á þriggja mánaða millibankavexti í norskum krónum leiðrétt
Landsbankinn lauk í dag sölu á skuldabréfum með breytilegum vöxtum til þriggja ára að fjárhæð 850 milljónir sænskra króna og 500 milljónir norskra króna. Gert er ráð fyrir að skuldabréfin fái lánshæfiseinkunnina BBB frá S&P Global Ratings. Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 80 punkta álagi á þriggja mánaða millibankavexti í sænskum og 79 punkta álagi á þriggja mánaða millibankavexti í norskum krónum.
Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna til viðskipta á Euronext Dublin þann 20. janúar 2022.
Umsjónaraðilar sölunnar voru Nordea, SEB og Swedbank.