Tilboðsfrestur valfrjáls yfirtökutilboðs í hlutafé Eikar fasteignafélags hf. framlengdur um fjórar vikur til 11. desember nk.- annar fasi athugunar Samkeppniseftirlits hófst 2. nóvember sl.
Helstu atriði 9 mánaða uppgjörs
Helstu áfangar á þriðja ársfjórðungi
Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins
„Rekstur félagsins er í takt við uppfærða áætlun sem birt var í kynningu á hálfsársuppgjöri. Tekjuvöxtur er 14,7% á fyrstu níu mánuðum ársins sem jafngildir 5,3% rauntekjuvexti. Útleiguhlutfall er 97,5% sem er sambærilegt og verið hefur. Um 45% af tekjum félagsins koma frá opinberum aðilum annars vegar og skráðum fyrirtækjum hins vegar. Vanskil leigutaka eru lág og mörg útleiguverkefni í burðarliðnum.
Þrjú þróunarverkefni fara í útleigu á næstu misserum. Sunnuhlíð 12 á Akureyri sem er nýr heilsutengdur þjónustukjarni, Eignarhluti Regins er samtals um 4.700 m2 og þar af eru um 4.070 m2 af nýjum eða endurbyggðum rýmum. Nú þegar hafa um 2/3 rýmisins verið leigðir út, þar af 1.840 m2 fyrir heilsugæslustöð, 570 m2 undir sjúkraþjálfun og 250 m2 undir lyfjaverslun. Á þriðju hæð í Smáralind er unnið að um 3.000 m2 hágæða skrifstofurými, þar af um 1.000 m2 í fyrsta áfanga sem tilbúinn verður nú um áramót. Að auki eru fyrstu leigutakar að taka við verslunarrýmum í Smárabyggð, samtals um 1.850 m2 af nýjum verslunar- og þjónusturýmum við Sunnu- og Silfursmára í Kópavogi.
Höfðatorg er í fullri útleigu og þróun Hafnartorgs hefur verið jákvæð á tímabilinu þar sem leigutekjur svæðisins hafa tvöfaldast frá sama tímabili í fyrra.
Það er markmið félagins að breið sátt náist um yfirtökutilboð í Eik fasteignafélag hf. og tilboðsfrestur hefur verið framlengdur til 11. desember næstkomandi. Þann 2. nóvember síðastliðinn tilkynnti Samkeppniseftirlitið um frekari rannsókn á samkeppnislegum áhrifum samrunans og hefur málið verið fært í fasa II.“
Rekstur og afkoma
Rekstrartekjur námu 10.145 m.kr. fyrstu níu mánuði ársins og þar af námu leigutekjur 9.587 m.kr. Leigutekjur hafa hækkað um 14,7% samanborið við sama tímabil 2022, sem jafngildir um 5,3% raunaukningu. Nokkrar breytingar hafa orðið á eignasafninu á milli ára sem hafa áhrif á leigutekjur. Í kjölfar straumlínulögunar eignasafnsins hefur tekjuberandi fermetrum og eignum fækkað á milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir (EBITDA) var 6.917 m.kr. sem samsvarar 13,1% hækkun samanborið við sama tímabil 2022.
Eignasafn og efnahagur
Virði fjárfestingareigna félagsins að frádregnum leigueignum er metið á 181.074 m.kr. Safnið samanstendur nú af 100 fasteignum sem alls eru um 373 þúsund fermetrar. Útleiguhlutfall er um 97,5% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi. Heildarmatsbreyting fyrstu níu mánuði ársins nam 8.711 m.kr. en hækkun áhættulausra vaxta í september 2023 hafði neikvæð áhrif á virðismat fjárfestingareigna á þriðja ársfjórðungi. Fermetrafjöldi eignasafns félagsins hefur lækkað um 2,3% frá byrjun árs 2022 en leigutekjur hækka um 14,7% á fyrstu níu mánuðum þessa árs sbr. við sama tímabil árið 2022.
Valfrjálst yfirtökutilboð í Eik fasteignafélag hf.
Þann 8. júní 2023 tilkynnti Reginn um ákvörðun stjórnar félagsins um að lagt yrði fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar fasteignafélags hf. (Eik). Samkvæmt tilboðsyfirlitinu, eins og því var breytt með viðauka dags 14. september munu hluthafar Eikar fá 1.670.351.049 hluti í Regin eða 48,0% útgefins hlutafjár í kjölfar viðskipta miðað við útgefið hlutafé Regins þann 13. september 2023. Tilboðsverðið og þar með skiptihlutfallið (48,0%) er ákvarðað með hliðsjón af markaðsvirði hvors félags fyrir sig miðað við dagslokagengi hlutabréfa þeirra þann 12. september síðastliðinn. Tilboðið mun taka til allra hluta í Eik sem ekki eru þegar í eigu Eikar. Fyrir á Reginn enga hluti í Eik.
Tilboðsfrestur hefur verið framlengdur þrisvar sinnum og er gildistími tilboðsins til kl. 13:00 þann 11. desember 2023 en þann 2. nóvember 2023 tilkynnti Samkeppniseftirlitið Regin um að það teldi ástæðu til frekari rannsóknar á samkeppnislegum áhrifum samrunans.
Tilboðið er háð skilyrðum um (i) að handhafar að lágmarki 75% atkvæðisréttar í Eik samþykki valfrjálsa tilboðið, (ii) að Samkeppniseftirlitið geri ekki athugasemd við viðskiptin eða setji viðskiptunum skilyrði sem Reginn sættir sig ekki við og (iii) að hluthafafundur Regins samþykki að veita stjórn heimild til þess að hækka hlutafé félagsins til þess að efna uppgjör á valfrjálsa tilboðinu. Með samþykki á hluthafafundi Regins þann 12. október síðastliðinn hefur síðastnefnda skilyrðið verið uppfyllt.
Umsvif og horfur
Á fyrstu níu mánuðum ársins hafa verið gerðir leigusamningar um 20.000 m2 sem er sambærilegur fermetrafjöldi og fyrir sama tímabil á síðasta ári.
Sjálfbærni
Síðastliðna mánuði hefur staðið yfir vinna við umhverfisvottun Áslandsskóla í Hafnarfirði og gert er ráð fyrir að vottun fáist fyrir mitt ár 2024.
Í samræmi við stefnu félagsins í sjálfbærnimálum liggur fyrir umhverfisskýrsla vegna ársfjórðungsins. Kolefnisspor hefur dregist saman um 1% á fermetra fyrir fyrstu þrjá ársfjórðunga ársins 2023 miðað við sama tímabil 2022.
Umhverfisuppgjör fyrir tímabilið og samanburð við fyrri tímabil er að finna á heimasíðu félagsins, www.reginn.is.
Fjármögnun
Fjárhagsstaða félagsins er sterk og fjárhagsleg skilyrði innan marka lánaskilmála, eiginfjárhlutfall 30,4% (skilyrði 25%). Í lok tímabilsins var handbært fé 3.841 m.kr. og auk þess hafði félagið aðgang að ónýttum lánalínum að fjárhæð 4.700 m.kr. í lok tímabilsins.
Í nóvember 2023 gerði Reginn samkomulag um að færa lokagjalddaga óverðtryggða lánssamninga sem voru á gjalddaga árið 2025 og er nýr gjalddagi lánanna árið 2028. Eftirstöðvar þessara lána nema um 9,7 ma.kr.
Endurfjármögnunarþörf félagsins er takmörkuð næstu ár, en engin lán og skuldabréf eru með gjalddaga á árunum 2023 og 2024, og heildarendurfjármögnunarþörf ársins 2025 eru rúmir 1,2 ma.kr.
Kynningarfundur á árshlutauppgjöri
Samhliða birtingu uppgjörs boðar Reginn til rafræns kynningarfundar fimmtudaginn 16. nóvember kl. 16:15. Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins kynnir uppgjör fyrstu níu mánaða ársins 2023 og svarar spurningum að lokinni kynningu. Hægt er að senda fyrirspurnir á fjarfestatengsl@reginn.is fyrir fundinn og meðan á kynningu stendur sem svarað verður að kynningu lokinni. Fundinum verður varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:
https://vimeo.com/event/3822144/embed/0d1bed8069
Hægt er að nálgast árshlutareikning vegna fyrstu níu mánaða ársins og kynningargögn á www.reginn.is/fjarfestavefur
Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins hf., sími: 821 0001
Viðhengi