Icelandic
Birt: 2026-05-27 19:15:19 CEST
Eik fasteignafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða útboðs skuldabréfa

Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk í dag útboði á skuldabréfaflokkunum EIK 150531, EIK 120266 og EIK 29 1.

Í útboðinu bárust tilboð að heildarnafnvirði 2.000 m.kr. í EIK 150531, 600 m.kr. í EIK 120266 og 1.020 m.kr. í EIK 29 1. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 2.000 m.kr. í EIK 150531 á ávöxtunarkröfunni 4,45%, tilboðum að nafnvirði 600 m.kr. í EIK 120266 á ávöxtunarkröfunni 3,99% og tilboðum að nafnvirði 1.020 m.kr. í EIK 29 1 á genginu 98,579.

Samhliða útboðinu bauðst fjárfestum að selja félaginu skuldabréf í flokknum EIK 050726 gegn greiðslu í nýjum skuldabréfum samkvæmt skilmálum útboðsins. Heildarnafnvirði samþykktra endurkaupa nam 840 m.kr.

Niðurstaða útboðs:

FlokkurEIK 29 1EIK 150531EIK 120266
Greiðslu- og uppgjörsdagur05.06.202605.06.202605.06.2026
Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)1.0202.000600
Samþykkt (ávöxtunarkrafa) 4,45%3,99%
Fjöldi innsendra tilboða462
Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)1.0202.000600
Fjöldi samþykktra tilboða462
Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa) 4,44%3,98%
Boðhlutfall1,001,001,00

Þetta var annað útboðið í flokknum EIK 150531 og er heildarstæð flokksins 5.980 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.

Þetta var þriðja útboðið í EIK 120266 og er heildarstærð flokksins 4.300 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.

Þetta var annað útboðið í skuldabréfaflokknum EIK 29 1 og er heildarstærð flokksins 4.080 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.

EIK 150531 og EIK 120266 eru verðtryggð skuldabréf tryggð með almenna tryggingarfyrirkomulagi félagsins. EIK 29 1 er óverðtryggt og óveðtryggt skuldabréf.

Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980