Niðurstaða úr skuldabréfaútboði ReykjavíkurborgarReykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1. Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 2.370 m.kr. í flokkana. Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 1.430 m.kr. að nafnvirði á bilinu 0,80% - 0,94%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 990 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 0,88%. Útistandandi fyrir útboð voru 10.893 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 11.883 m.kr. að nafnverði. Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 940 m.kr. að nafnviði á bilinu 3,95% - 4,065%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 700 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,03%. Útistandandi fyrir útboð voru 15.185 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 15.885 m.kr. að nafnverði. Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 17. ágúst 2021. Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu. Nánari upplýsingar veitir: Helga Benediktsdóttir Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is Sími: 898-8272
|