Síminn hf. – Niðurstöður aðalfundar 10. mars 2022Meðfylgjandi eru niðurstöður frá aðalfundi Símans hf. sem haldinn var í gær. Sjálfkjörið var í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár. Stjórnin hefur skipt með sér verkum og er Jón Sigurðsson formaður stjórnar og Sigrún Ragna Ólafsdóttir varaformaður stjórnar. Stjórnin er þannig skipuð: - Jón Sigurðsson, formaður stjórnar
- Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður stjórnar
- Arnar Þór Másson
- Bjarni Þorvarðarson
- Björk Viðarsdóttir
Sjálfkjörið var í tilnefningarnefnd félagsins fyrir næsta starfsár en nefndina skipa: - Jensína Kristín Böðvarsdóttir
- Steinunn Kristín Þórðardóttir
- Sverrir Briem
Niðurstöður aðalfundarins má að öðru leyti sjá í meðfylgjandi fundargerð. Ársskýrsla Símans hf. fyrir árið 2021 hefur verið gefin út. Skýrsluna má nálgast á heimasíðu félagsins á vefslóðinni: https://www.siminn.is/arsskyrslur/arsskyrsla-2021.
|