Icelandic
Birt: 2023-12-13 17:28:38 CET
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 13. desember 2023. Uppgjör viðskipta fer fram 18. desember 2023.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 2.778.000.000 á bilinu 3,68% - 3,81%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.930.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,70%. Útistandandi fyrir voru ISK 20.857.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 22.787.600.000.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 425.000.000 á bilinu 3,39% - 3,48%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 425.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,48%. Útistandandi fyrir voru ISK 28.680.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 29.105.000.000.

 

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949